Handbolti

Arnar Freyr í FH

Arnar Freyr ásamt Sigurgeiri Árna Ægissyni, framkvæmdarstjóra FH.
Arnar Freyr ásamt Sigurgeiri Árna Ægissyni, framkvæmdarstjóra FH. vísir/fh
Arnar Freyr Ársælsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við FH í Olís-deild karla, en þetta kom fram í tilkynningu frá FH nú síðdegis.

Arnar kemur frá Fram, en hann er annar leikmaðurinn sem kemur til FH frá Fram í sumar þar sem Óðinn Þór Ríkharðsson kom einnig frá Fram.

„Ég er mjög ánægður að fá Arnar Frey til liðs við okkur. Hann er metnaðarfullur leikmaður sem mun styrkja okkur mikið," sagði Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari liðsins, í samtali við FH.is.

„Ég þekki til hans, enda þjálfaði ég hann þegar hann var yngri. Hann er ósérhlífinn og hefur marga kosti, m.a. þann að geta spilað margar stöður í vörn sem getur gefið okkur ýmsa möguleika," sagði Halldor enn fremur.

Flóttinn mikli frá Fram heldur því áfram, en Guðmundur Helgi Pálsson tók við liðinu fyrir skömmu og bíður hans mikið verk með Fram í Olís-deildini í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×