Íslenski boltinn

Arnar: Þeir völtuðu yfir okkur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnar Már Björgvinsson lét mikið að sér kveða gegn Fylki.
Arnar Már Björgvinsson lét mikið að sér kveða gegn Fylki. Vísir/Arnþór
Arnar Már Björgvinsson er leikmaður tólftu umferðar að mati Fréttablaðsins, en hann átti frábæran leik þegar Stjarnan bar sigurorð af Fylki í Árbænum með þremur mörkum gegn einu.

Arnar skoraði fyrsta mark Stjörnunnar og lagði hin seinni tvö upp. Hann sagðist hafa fundið sig vel í leiknum.

"Já, hef nú skorað reglulega í Árbænum í gegnum tíðina. Ég fann mig vel í leiknum og hélt áfram á því góða róli sem ég hef verið á í síðustu leikjum," sagði Arnar sem hefur skorað fimm mörk í síðustu fimm leikjum Stjörnunnar.

Arnar sneri aftur í Garðabæinn í vetur eftir þriggja ára dvöl hjá Breiðabliki, þar sem hann skoraði fimm mörk í 32 deildarleikjum. Samningur hans við Kópavogsliðið rann út eftir síðasta tímabil og í kjölfarið hóf Arnar að æfa með sínum gömlu félögum í Stjörnunni.

"Ég hringdi í Rúnar Pál Sigmundsson í nóvember með það fyrir augum að fá að æfa með Stjörnunni. Það fór strax að ganga vel, ég fór að spila með þeim og svo var samið við mig í byrjun janúar. Þetta gekk allt mjög hratt fyrir sig," sagði Arnar sem kom til Stjörnunnar í þriðja flokki frá Álftanesi þar sem hann hóf sína knattspyrnuiðkun. Hann lék tvö ár með Stjörnunni í Pepsi-deildinni áður en hann gekk í raðir Breiðabliks fyrir tímabilið 2011.

Stjörnunni hefur gengið flest í haginn á tímabilinu, en liðið situr í 2. sæti Pepsi-deildarinnar með 26 stig eftir tólf umferðir og hefur ekki enn tapað deildarleik. En hver er lykilinn að þessum góða árangri að mati Arnars?

"Ég held að það sé stemmningin í liðinu og stemmningin í Garðabænum. Við höfum spilað eftir sama leikplani síðan í vetur og ég held að við séum bara búnir að tapa einum leik í ár (gegn FH í undanúrslitum Lengjubikarsins), fyrir utan tapið gegn Þrótti í framlengingu í Borgunarbikarnum."

Stjarnan er aðeins tveimur stigum frá toppsætinu, en Arnar segir þó að leikmennirnir séu ekki farnir að hugsa um Íslandsmeistaratitilinn.

"Við höfum aðeins rætt þetta nokkrir innan leikmannahópsins og menn eru ekkert farnir að láta sig dreyma um Íslandsmeistaratitilinn. Markmiðið fyrir tímabilið var að halda Evrópusætinu og við erum á góðri leið með það.

"Við erum samt orðnir meðvitaðir um það að toppsætið blasir við okkur og við munum gera allt til þess að hrifsa það frá FH-ingum," sagði Arnar.

Á morgun leikur Stjarnan seinni leik sinn gegn Motherwell í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Stjörnumenn náðu jafntefli í fyrri leiknum í Skotlandi eftir að hafa lent 2-0 undir, en Arnar segir fyrstu mínútur leiksins hafa verið mjög erfiðar.

"Ég get verið hreinskilinn með það að þeir völtuðu yfir okkur fyrstu 20 mínúturnar. Maður snerist bara í hringi og hélt að þetta myndi fara 10-0. En undir góðri leiðsögn Veigars Páls Gunnarssonar fórum við að spila okkar bolta og þá sköpuðum við okkar bestu færi í sumar.

"Ég held að við höfum aldrei skapað jafn mörg færi í leik í sumar og við sýndum að eigum í fullu tré við þetta lið. Við erum fullir tilhlökkunar fyrir morgundeginum."

Eins og komið hefur fram í fréttum er Arnar á leið til Hollands í haust þar sem hann mun leggja stund á meistaranám í lögfræði. Hann segir óljóst hvernig málum hans verði háttað þegar þar að kemur.

"Þetta er ekki komið á hreint ennþá. Ég veit ekki hvenær ég þarf að vera kominn út, en ég mun reyna að fresta því eins og ég get. Þetta er auðvitað glataður tími til að fara út, sérstaklega þegar það hefur gengið svona vel. Ég hugsa að ég nái að klára alla leikina fram að landsleikjahléinu og svo kemur í ljós hvort ég nái þessum síðustu fjórum leikjum," sagði Arnar að lokum.


Tengdar fréttir

Uppbótartíminn: Doumbia sá rautt

Tólftu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu lauk í gær. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu vondan dag? Hvað segir tölfræðin og hver var umræðan á Twitter? Vísir gerir upp umferðina á léttum nótum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×