Íslenski boltinn

Arnar: Schoop er klassa fyrir ofan aðra leikmenn á Íslandi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
„Hann er frábær - einn besti leikmaðurinn í deildinni. Schoop var með sýningu á KR-vellinum þrátt fyrir að skora ekki,“ sagði Hjörvar Hafliðason um Danann Jacob Schoop í Pepsi-mörkunum í gærkvöldi.

Schoop fór á kostum gegn Keflavík í 4-0 sigri KR, en danski miðjumaðurinn átti stóran þátt í þremur af fjórum mörkum KR-liðsins.

Schoop þurfti að standa af sér nokkrar tæklingar í gærkvöldi, en Keflvíkingarnir spiluðu nokkuð fast á Danann.

„Keflvíkingar vissu það fyrir leik að þetta er frábær leikmaður og ætluðu að beita ofbeldi til að stöðva hann. Þeir reyndu að meiða hann, en Schoop var heppinn,“ sagði Hjörvar.

Arnar Gunnlaugsson er einnig mjög ánægður með innkomu Schoop í deildina.

„Það er svo mikill elegans yfir hans hreyfingum. Ekki bara með bolta heldur án bolta. Þessi leikmaður er klassa ofar en aðrir leikmenn á Íslandi,“ sagði hann og Hjörvar bætti við:

„Hann er ofboðslega klár fótboltamaður. Þetta er einhver allra skemmtilegasti fótboltamaður sem komið hefur hingað í mörg ár,“ sagði Hjörvar Hafliðason.

Alla umræðuna um Jacob Schoop má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×