Sport

Arna Stefanía fegin að hafa hætt við að hætta: „Ég var alveg komin með upp í kok“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Fyrir hálfu öðru ári ætlaði Arna Stefanía Guðmundsdóttir frjálsíþróttakona í FH að hætta í íþróttum. Um helgina varð hún Norðurlandameistari í 400 metra hlaupi og framundan eru mörg verkefni hjá þessum efnilega íþróttamanni.

„Ég hef einu sinni áður keppt á fullorðinsmóti. Það var á EM í Amsterdam síðasta sumar. Það verður mjög gaman að fá að keppa núna á EM innanhúss. Þetta leggst mjög vel í mig. Formið er gott og ég held að allt sé opið þar. Maður veit svona næstum því hvar maður stendur í Evrópu núna. Ég held að ég sé á nokkuð góðum stað,“ segir Arna Stefanía.

Arna Stefanía hefur  bætt sig mikið á skömmum tíma.  Fyrir keppnistíðina hafði hún best hlaupið á 4,40 sekúndum en á Reykjavíkurleikunum bætti hún Íslandsmet 20-22ja ára þegar hún hljóp á á 53,92 sekúndum.  Í byrjun mars keppir hún á Evrópumótinu í Belgrad. Ekki er langt síðan hún ætlaði að hætta í íþróttum.

„Sumarið 2014 var ég komin með upp í kok. Ég meiddist og andlega hliðin var alveg farin. Ég hafði ekkert gaman að þessu og mig langaði ekki einu sinni til að koma og horfa á frjálsíþróttamót,“ segir hún.

„Ég fór að æfa aðeins með Silju Úlfars og hún kom mér aftur af stað. Sem betur fer náði ég að komast inn til Ragnheiðar en hún hefur skipt mig miklu máli í mínum árangri.“

Hún sér ekki eftir því að hætta við að hætta: „Alls ekki. Stundum er maður þreyttur og nennir ekki á æfingu en ánægjan þegar þú kemur í mark og þú sérð að æfingarnar eru að skila sér er mikil. Sumir lýsa þessu sem vímu og ég get tekið undir það.“

Allt innslagið úr kvöldfréttum Stöðvar 2 má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×