Sport

Arna setti nýtt Íslandsmet í 400 metra grindahlaupi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arna Stefanía setti nýtt Íslandsmet í gær.
Arna Stefanía setti nýtt Íslandsmet í gær. vísir/anton
Aníta Hinriksdóttir var ekki sú eina sem gerði það gott á sterku frjálsíþróttamóti í Nimone í Belgíu um helgina því Arna Stefanía Guðmundsdóttir, FH, setti þar nýtt Íslandsmet í 400 metra grindahlaupi í flokki 20-22 ára.

Arna, sem átti sviðið á Meistaramótinu í frjálsum um síðustu helgi, kom í mark á tímanum 57,81 sekúndu og sló þar með 30 ára gamalt Íslandsmet Helgu Halldórsdóttur sem var 58,44 sekúndur.

Fyrir mótið í Belgíu var besti árangur Örnu í 400 metra grindahlaupi 58,79 sekúndur sem hún náði í Evrópukeppni landsliða í Búlgaríu í júní á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×