Lífið

Armisen lofar Ísland

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Fred tók það fram að hann klæðir sig ekki svona dags daglega.
Fred tók það fram að hann klæðir sig ekki svona dags daglega. Fréttablaðið/Andri Marinó
„Ég elska allt við Ísland, fólkið og náttúruna,“ sagði Fred Armisen í samtali við blaðamann Fréttablaðsins í miðbæ Reykjavíkur í gær.

Fred er staddur á Íslandi til að taka upp atriði fyrir skemmtiþáttinn American documentary en tökuliðið bauð um það bil sextíu íslenskum aukaleikurum að taka þátt í tökum við Dómkirkjuna og í Kvosinni.

American documentary eru svokallaðir „mocumentary“ þættir og eru látnir líta út fyrir að vera heimildarmynd. En ásamt honum standa leikararnir Bill Hader og Seth Meyers að þáttunum. Þá er Fred eflaust þekktastur fyrir hlutverk sín í grínþáttunum Saturday Night Live og Portlandia.

Hann vildi þó taka það fram að hann væri í búning en klæddi sig ekki svona dags daglega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×