Ármann Þorvaldsson hættur í Virðingu og verður nýr forstjóri Kviku banka Hörður Ægisson skrifar 27. apríl 2017 18:23 Ármann Þorvaldsson starfaði áður sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Virðingar.
Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Kaupþings Singer & Friedlander í Bretlandi, mun taka við Sigurði Atla Jónssyni sem forstjóri Kviku fjárfestingabanka, samkvæmt heimildum Vísis. Greint var frá því fyrr í dag að Sigurður Atli hefði tilkynnt stjórn bankans að hann hefði ákveðið að láta af störfum. Ármann hefur starfað hjá verðbréfafyrirtækinu Virðingu undanfarin tvö ár, síðast sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar, en hætti þar störfum í dag, samkvæmt öruggum heimildum Vísis. Þá mun Marinó Örn Tryggvason, sem hefur verið forstöðumaður eignastýringar fagfjárfesta í Arion banka, koma yfir til Kviku og verða aðstoðarforstjóri bankans. Stjórnir Kviku banka og Virðingar höfðu verið í viðræðum um sameiningu félaganna um nokkurra mánaða skeið en í lok mars á þessu ári var þeim slitið. Kvika banki varð til eftir sameiningu MP banka og Straums fjárfestingabanka sumarið 2015. Á árinu 2016 nam hagnaður Kviku um tveimur milljörðum króna og arðsemi eigin fjár var 34,7 prósent. Í dag var greint frá því að hagnaður Kviku eftir skatta hefði numið tæplega 400 milljónum króna, sem var talsvert umfram áætlun.
Mest lesið Hvað er opið um páskana? Neytendur Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira