Leikjavísir

Arkham Knight fimm sinnum stærri en forveri sinn

Samúel Karl Ólason skrifar
Fjórði leikurinn um Batman sem áætlað er að verði gefinn út í júní á næsta ári, er sagður vera fimm sinnum stærri en Batman: Origins, sem kom út í fyrra. Þrátt fyrir stærðina segja framleiðendur leiksins að sagan verði, sem áður, í forgrunni.

Að þessu sinni gerist leikurinn ári á eftir atburðum Arkham City og hefur Fuglahræðan sameinað alla helstu óvini Batman.

Auk þess að leikurinn gerist á mun stærra svæði en áður hafa Rocksteady Studios bætt við leðurblökubílnum. Nánar má sjá um hann í myndböndunum hér að neðan.

Guy Perkins, frá Rocksteady, segir IGN að Fuglahræðan hafi vísvitandi ekki verið með í Arkham City.

„Hann á svo mörg góð atriði úr fyrsta leiknum, að hafa hann aftur sem óvin er mjög flott. Hann í raun spegilmynd Batman, þar sem þeir nota bæði ótta sem helsta vopn sitt.“

Batman: Arkham Knight kemur út á PS4, Xbox One og PC 2. júní á næsta ári.

Father to son Evening the odds Gameplay Batmobile





Fleiri fréttir

Sjá meira


×