Arion innleiðir skjalakerfi frá Skýrr 27. júní 2011 15:00 Við undirritun samnings Arion banka við Skýrr um innleiðingu á nýju skjalakerfi fyrir bankann. Hægra megin við miðju standa þeir Höskuldur Ólafsson bankastjóri og Gestur G. Gestsson forstjóri.
Arion banki hefur undirritað samstarfssamning við Skýrr um umfangsmikla innleiðingu á EMC Documentum-skjalakerfi og gagnageymslu frá alþjóðlega upplýsingatæknifyrirtækinu EMC. Samningurinn felur í sér viðamiklar breytingar og framþróun á skjalavistun og gagnameðhöndlun Arion banka. Í tilkynningu frá Skýrr segir að EMC Documentum geri til dæmis kleift að auka sjálfvirkni í ferlum og auka hraða og nákvæmni við flokkun þeirra, hýsingu og umsýslu. „Í samningnum er meðal annars kveðið á um nýjar kerfiseiningar fyrir skjöl, ferla, sniðmát, trúnaðargögn og tengdar öryggislausnir, ásamt skönnunarkerfi. Skýrr er sölu- og þjónustuaðili EMC á Íslandi.“ „Skýrr hefur undanfarin misseri unnið markvisst að því að efla teymi fyrirtækisins á sviði upplýsingatækni fyrir banka og fjármálastofnanir. Við höfum lengi verið í fremstu röð hér á landi á þessu sviði og ætlum að byggja ofan á það forskot. Höfum í því skyni bæði eflt hópinn og stækkað, ásamt því sem við höfum bætt við okkur hugbúnaðarlausnum og þjónustuþáttum. Við teljum að þessi mikilvægi samningur við Arion banka sé ávöxtur þeirrar viðleitni okkar," segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr. „Arion banki er metnaðarfullur og kröfuharður viðskiptavinur, sem hefur ávallt verið í fremstu röð hér á landi í nýtingu upplýsingatækni. Bankinn leggur mikið upp úr gæðum og hagkvæmni í rekstri og ætlast til fyrsta flokks þjónustu af sínum birgjum. Fjármálastofnun af þessari stærðargráðu innleiðir ekki nýtt skjalakerfi nema að mjög vel athuguðu máli. Við erum því vitaskuld afskaplega stolt af þessum samningi og hlökkum mikið til samstarfsins við Arion banka," bætir Gestur við.
Mest lesið Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Sjá meira