Viðskipti erlent

Árið sem vídeótækið dó

Sæunn Gísladóttir skrifar
Ekki er lengur hægt að kaupa nýtt VHS-tæki.
Ekki er lengur hægt að kaupa nýtt VHS-tæki. Vísir/Stefán
Miklar tækniframfarir áttu sér stað árið 2016. Amazon hóf að senda pakka með dróna og sjálfkeyrandi Uber-bílar fóru að keyra um götur Bandaríkjanna. Þrettán þekktar tæknivörur voru þó teknar úr framleiðslu á árinu.

CNN bendir á að þetta var árið þegar framleiðslu vídeótækja var hætt, í júlí. Einnig hætti Samsung framleiðslu Galaxy Note 7 í haust eftir að batteríið hóf að springa.

Apple ákvað að hætta að vera með heyrnartól sem tengd væru við iPhone og framleiða þess í stað þráðlaus heyrnartól, breyting sem fór í taugarnar á mörgum.

Hætt var með Picasa-myndaforrit Google í mars eftir að Google Photos hafði náð meiri vinsældum. Loks hætti BlackBerry, einn vinsælasti símaframleiðandinn fyrir áratug, að hætta að framleiða eigin síma.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×