Bílar

Árið fer vel af stað í bílasölu

Finnur Thorlacius skrifar
Jepplingar og jeppar áttu uppá pallborðið hjá íslenskum kaupendum bíla í janúar.
Jepplingar og jeppar áttu uppá pallborðið hjá íslenskum kaupendum bíla í janúar.
Salan á árinu fór vel af stað hjá bílaumboðum landsins en alls voru nýskráðir 1.386 fólks- og sendibílar, 3 prósentum fleiri en í sama mánuði í fyrra þegar nýskráður var 1.341 bíll til einstaklinga, fyrirtækja og bílaleiga. Alls voru 216 bílar nýskráðir til bílaleiganna, 56 prósentum færri en í janúar 2016 þegar 495 bílar voru nýskráðir. Vöxtur BL í mánuðinum, samanborið við janúar 2016 nam 19 prósentum, 16 prósentum umfram markaðinn í heild. Hlutfallslega mesta aukningu í mánuðinum miðað við sama tíma í fyrra hafði Brimborg með 47 prósent.

Markaðshlutdeild BL í heild í janúar var 28,9%. Næstmesta markaðshlutdeild hafði Toyota með 18,9% og síðan Askja með 16,4%. Sé einungis litið til janúarsölunnar án bílaleigubíla nam markaðshlutdeild BL 29 prósentum. Næst á eftir kom Toyota með 21,3% og svo Brimborg með 16,2 prósenta hlutdeild.

Mánuður jeppa og jepplinga

Sé janúarsalan til einstaklinga og fyrirtækja (án bílaleiga) skoðuð eftir bílaflokkum kemur í ljós að janúar var mánuður jepplinga (sportjeppa), jeppa og pallbíla, en sala þeirra nam rétt rúmlega helmingi sölunnar eða 50,69 prósentum. Þannig var markaðshlutdeild jepplinga 37,44% og jeppa og pallbíla alls 13,25%. Í sama mánuði í fyrra nam sala þessara bílgerða alls 39,24 prósentum sem er raunar sama hlutfall og hún var allt árið 2016.

Hyundai i10 leiddi smábílasöluna

Hvað varðar sölu á smábílum (A-flokkur) til einstaklinga og fyrirtækja án bílaleigubíla í janúar var Hyundai i10 leiðandi á markaðnum í mánuðinum með rúmlega 34% hlutdeild og Toyota Aygo þar á eftir með 25% hlutdeild. Af einstökum merkjum hjá BL hafði Nissan mestu markaðshludeildina, tæp 25%, þar sem Qashqai bar hæst með alls 37 bíla af 100 sem nýskráðir voru í janúar.

BL leiðandi á sendibílamarkaði

Í flokki lítilla og meðalstórra sendibíla nam markaðshlutdeild BL 33,8 prósentum í janúar í sölu til einstaklinga og fyrirtækja en alls 47,7 prósentum að viðbættum bílaleigubílum. Markaðshlutdeild Nissan í sendibílasölu janúarmánaðar var 26,6%  og Renault 21,4%.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×