Fótbolti

Ari og Sverrir í tapliði

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sverrir í leik með Lokeren.
Sverrir í leik með Lokeren. vísir/getty
Ari Freyr Skúlason og Sverrir Ingi Ingason voru í byrjunarliði Lokeren sem lá fyrir Genk 3-0 í belgísku úrvalsdeildinni í dag.

Mbwana Samata skoraði tvö mörk með fjögurra mínútna millibili í fyrri hálfleik og staðan var 2-0 fyrir Genk í hálfleik.

Sverrir Ingi var tekinn af velli í hálfleik, en Leon Bailey skoraði þriðja og síðasta mark leiksins á 48. mínútu. Lokatölur 3-0 sigur FH-banana í Genk.

Ari Freyr spilaði allan leikinn fyrir Lokeren sem er í fjórtánda sætinu með þrjú stig eftir leikina fjóra sem búnir eru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×