Fótbolti

Ari Freyr spilaði allan leikinn í tapi

Dagur Lárusson skrifar
Ari Freyr Skúlason
Ari Freyr Skúlason vísir/getty
Ari Freyr Skúlason spilaði allan leikinn þegar Lokeren tapaði naumlega fyrir Eupen í belgísku deildinni í kvöld.

Það var Lokeren sem byrjaði leikinn betur og komst yfir strax á 7. mínútu leiksins en áður en flautað var til leikhlés var staðan orðin 2-1 fyrir Eupen.

Jose Cevallos jafnaði fyrir Lokeren snemma í seinni hálfleiknum og allt stefndi í jafntefli en allt kom fyrir ekki því Luis Garcia skoraði fyrir Eupen á 80. mínútu og tryggði liði sínu sigurinn.

Eftir leikinn eru Ari Freyr og félagar í 14. sæti deildarinnar með 28 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×