Sport

Ari Bragi sló Íslandsmet Jóns Arnars í Kaplakrika

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ari Bragi sáttur að hlaupinu loknu fyrr í dag.
Ari Bragi sáttur að hlaupinu loknu fyrr í dag. Vísir/Facebook-síða FRÍ
Ari Bragi Kárason úr FH setti í dag nýtt Íslandsmet í 100m hlaupi karla á Spretthlaupsmóti FH í dag þegar hann hljóp á 10,52 sekúndu í Kaplakrika.

Það voru kjöraðstæður á Spretthlaupsmótinu í dag, vindur +2,0 sem er það sem hann má mest vera.

Með þessu hlaupi sló Ari Bragi út Íslandsmet Jóns Arnars Magnússonar 10,56 sekúndur á rafmagnstíma frá 1997.

Tíminn er einnig betri en besti skráði ,,handtími" Hilmars Þorbjörnssonar frá 1957, Vilmundar Vilhjálmssonar frá 1977 og Jóns Arnars Magnússonar frá 1996 en þeir hlupu allir á 10,3s en sá tími jafngildir 10,54s samkvæmt reiknireglu.

Í sama hlaupi bætti Kolbeinn Höður Gunnarsson sinn besta tíma þegar hann hljóp á 10,61s og Trausti Stefánsson bætti sig sömuleiðis þegar hann hljóp á 10,85s.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×