Fótbolti

Ari: Förum til Króatíu til að sækja þrjú stig

Kristinn Páll Teitsson á Laugardalsvelli skrifar
Ari var öflugur í kvöld.
Ari var öflugur í kvöld. Vísir/Getty
„Við tökum fullt hús stiga í þessu landsleikjahléi en þetta var miklu heildsteyptari frammistaða í kvöld. Þeir skapa sér varla færi í kvöld fyrir utan einhver langskot,“ sagði Ari Freyr Skúlason, bakvörður íslenska liðsins, aðspurður út í spilamennsku liðsins eftir 2-0 sigur á Tyrkjum í kvöld.

„Þetta var allt annað lið en við mættum í Tyrklandi fyrir ári síðan en við mættum bara með mun betra hugarfar til leiks í kvöld. Frá fyrstu sekúndu vorum við klárir á meðan þeir áttu í vandræðum með þetta skemmtilega íslenska veður.“

Sjá einnig:Umfjöllun: Ísland - Tyrkland 2-0 | Strákarnir hver öðrum betri í sannfærandi sigri

Ari hrósaði Theodóri Elmari Bjarnasyni sem kom inn fyrir fyrirliðann Aron Einar Gunnarsson en Elmar átti stóran þátt í fyrsta marki Íslands í kvöld

„Hann var hreint út sagt frábær í kvöld og Birkir sömuleiðis. Hann á allt hrós skilið eftir kvöldið eftir þessa frábæru innkomu. Hann vann og vann og vann, var öflugur sóknarlega sem og varnarlega,“ sagði Ari og bætti við:

„Þetta sýndi að við erum ekki bara með ellefu leikmanna hóp. Það geta og vilja fleiri fá að spila og við erum með fullt af mönnum á bekknum sem eru að spila vel. Það eru allir klárir að koma inn í liðið.“

Ari tók undir að það hefði verið léttir að setja strax annað markið í andlitið á Tyrkjum eftir fyrsta markið.

„Það var mjög stórt, það var mikilvægt að fá smá svigrúm en við gátum ekki slakað á klónni. Þeir voru 0-2 undir gegn Úkraínu og náðu að bjarga því. Við vorum staðráðnir í að hleypa þeim ekki aftur inn í leikinn og varnarleikurinn er það sem skóp sigurinn í dag.“

Næsti leikur Íslands er á kunnuglegum slóðum gegn Króatíu þar sem Ísland féll úr leik í undankeppni HM haustið 2013.

„Við erum reynslunni ríkari og búnir að fullt af stórum leikjum en við mætum feyknasterku króatísku liði. Við vitum hvað þeir geta en við förum út til þess að taka þrjú stig.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×