Handbolti

Argentínumenn eiga enn möguleika á 8-liða úrslitunum | Úrslit gærkvöldsins

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Federico Vieyra leikmaður Argentínu.
Federico Vieyra leikmaður Argentínu. Vísir/Getty
Argentínumenn komu á óvart og unnu nauðsynlegan tveggja marka sigur á Túnis 23-21 á  Ólympíuleikunum í handbolta sem fer fram í Ríó.

Sigurinn þýðir að Argentína mætir Katar í hreinum úrslitaleik upp á sæti í 8-liða úrslitunum en Katar nægir jafntefli í þeim leik.

Argentínumenn voru sterkari aðilinn allt frá byrjun og leiddu allan leikinn. Tóku þeir fjögurra marka forskot inn í hálfleikinn 14-10.

Túnis tókst um tíma að jafna í seinni hálfleik en Argentínumenn reyndust vera sterkari á lokakaflanum og fögnuðu að lokum sigri eftir að hafa leitt með fimm mörkum skömmu fyrir leikslok.

Heimamenn í Brasilíu eru ekki enn öruggir inn í 8-liða úrslitin eftir jafntefli gegn Egyptalandi en sigur hefði fleytt liðinu inn í úrslitin.

Egyptar leiddu allt frá fyrstu mínútu leiksins en Brössum tókst að jafna á lokamínútum leiksins.

Þá unnu Pólverjar nauman sigur á Svíum í gær en tapið þýðir að Svíar eru úr leik þegar ein umferð er eftir.

Svíar leiddu í hálfleik en í seinni hálfleik náðu Pólverjar að snúa leiknum sér í hag undir lok leiksins.

Úrslit gærdagsins:

Egyptaland 27-27 Brasilíu

Svíþjóð 24-25 Pólland

Argentína 23-21 Túnis




Fleiri fréttir

Sjá meira


×