Fótbolti

Argentína fær tækifæri til að hefna gegn Síle

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Leikmenn Síle fagna í nótt.
Leikmenn Síle fagna í nótt. vísir/epa
Það verða Argentína og Síle sem mætast í úrslitaleik Copa America en undanúrslitin kláruðust í nótt.

Þá lagði Síle lið Kólúmbíu, 2-0, en Argentína skellti Bandaríkjamönnum, 4-0.

Það tók Síle aðeins ellefu mínútur að ganga frá leiknum með mörkum frá Charles Aranguiz og Jose Pedro Fuenzalida.

Í síðari hálfleik varð að gera tveggja tíma hlé á leiknum er þrumuveður gekk yfir Chicago með tilheyrandi rigningu og látum.

Síle og Argentína mættust einnig í úrslitaleiknum í fyrra og þá vann Síle eftir vítaspyrnukeppni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×