Innlent

Árekstur við afleggjarann að Hvammstanga

Atli Ísleifsson skrifar
Keyrt var aftan á kyrrstæðan bíl en í honum voru fjórir erlendir ferðamenn.
Keyrt var aftan á kyrrstæðan bíl en í honum voru fjórir erlendir ferðamenn. Vísir/Jón Sigurður
Sex voru fluttir á slysadeild eftir árekstur tveggja fólksbíla á þjóðveginum við afleggjarann til Hvammstanga á fimmta tímanum í dag.

Að sögn lögreglu var keyrt aftan á kyrrstæðan bíl en í honum voru fjórir erlendir ferðamenn. Tveir voru í hinum bílnum.

Uppfært klukkan 19.35:

Að sögn lögreglunnar á Blönduósi virðist hafa farið betur en á horfðist í fyrstu og að við fyrstu sýn hafi ekki orðið alvarleg slys á fólki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×