Fótbolti

Arda Turan með tvær þrennur í desember

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arda Turan fagnar með Paco Alcácer.
Arda Turan fagnar með Paco Alcácer. vísir/getty
Barcelona er komið áfram í 16-liða úrslit spænsku bikarkeppninnar eftir 7-0 stórsigur á Hercules á Nývangi í kvöld.

Fyrri leiknum lyktaði með 1-1 jafntefli. Börsungar sýndu hins vegar enga miskunn í leiknum í kvöld og rúlluðu yfir C-deildarliðið.

Arda Turan skoraði þrennu í leiknum í kvöld. Þetta var önnur þrenna Tyrkjans á tímabilinu en hann skoraði einnig þrjú mörk í 4-0 sigri Barcelona á Borussia Mönchengladbach fyrr í mánuðinum.

Lucas Digne, Ivan Rakitic, Rafinha og Paco Alcácer komust einnig á blað í leiknum í kvöld.

Næsti leikur Barcelona er ekki fyrr en 8. janúar en þá sækir liðið Villarreal heim í spænsku úrvalsdeildinni.


Tengdar fréttir

Basl á Börsungum

Barcelona náði aðeins jafntefli gegn C-deildarliði Hercules í 32-liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×