Viðskipti erlent

Arby's biður Pepsi afsökunar í auglýsingu

Atli Ísleifsson skrifar
Auglýsingin sem lýkur á orðunum "Arby's. Við erum með Pepsi“, sem er vísun í slagorð keðjunnar "Arby's. Við erum í kjöti.“
Auglýsingin sem lýkur á orðunum "Arby's. Við erum með Pepsi“, sem er vísun í slagorð keðjunnar "Arby's. Við erum í kjöti.“
Bandaríska skyndibitakeðjan Arby‘s hefur birt nýja auglýsingu sem snýst öll um að biðja gosdrykkjaframleiðandann Pepsi afsökunar.

Skyndibitakeðjan selur Pepsi-drykki á stöðum sínum, en í samningi fyrirtækjanna kemur fram að Pepsi eigi að koma fyrir í að minnsta kosti tveimur auglýsingum skyndibitakeðjunnar á ári hverju.

Á vef Wall Street Journal segir að markaðsdeild Arby‘s hafi verið bent á það fyrir skemmstu að þeir hefðu ekki staðið við samninginn á þessu ári.

Fyrirtækið leitaði því til auglýsingastofunnar Fallon sem réðst í gerð auglýsingar sem lýkur á orðunum „Arby's. Við erum með Pepsi“, sem er vísun í slagorð keðjunnar „Arby‘s. Við erum í kjöti.“

Sjá má auglýsinguna að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×