Innlent

Árborg gert að greiða 24 milljónir vegna mistaka

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Sveitarfélagið þarf að greiða bætur vegna formgalla á útboði á sorphirðu.
Sveitarfélagið þarf að greiða bætur vegna formgalla á útboði á sorphirðu. vísir/pjetur
Sveitarfélaginu Árborg var í Héraðsdómi Suðurlands í gær gert að greiða Gámaþjónustunni tæplega 19 milljónir króna vegna mistaka þess við útboð á sorphirðu árið 2011. Árborg var jafnframt dæmt til að greiða Gámaþjónustunni 5,5 milljónir króna í málskostnað.

Tveir skiluðu tilboðum í verkið; Íslenska gámafélagið og Gámaþjónustan, en Gámaþjónustan átti hagkvæmara tilboðið. Meirihluti bæjarráðs ákvað hins vegar að hafna þeim tilboðum sem bárust í verkið og taldi að færa mætti rök fyrir því að gallar kynnu að hafa verið á framkvæmd útboðsins.

Jafnframt vísaði meirihlutinn til þess að kostnaður við lægsta tilboðið hafi verið yfir 13 milljónum krónum hærri fyrir árið 2012 en hann var árinu áður.

Gámaþjónustan taldi ákvörðun meirihlutans um að hafna tilboðinu ólögmæta. Árborg hafi verið skylt að semja við fyrirtækið í kjölfar útboðsins og kvaðst hafa orðið fyrir tjóni vegna niðurfellingarinnar.

Taldi Gámaþjónustan jafnframt að Gunnar Egilsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, hafa verið óheimilt að taka þátt í ákvörðun bæjarráðs um að hafna tilboðinu. Hann sé bróðir rekstrarstjóra Íslenska gámafélagsins og að þarf af leiðandi hafi Gunnar verið vanhæfur við þessa ákvarðanatöku.

Árborg mótmælti þessu, sem og að tilboðið væri ólögmætt, og sagði meðal annars að Gámaþjónustan hafi engin sönnunargögn lagt fram sem styðji það að fyrirtækið hafi orðið fyrir fjárhagslegu tjóni.

Héraðsdómur taldi ekki annað ráðið af gögnum málsins en að það hafi verið í kjölfar tölvupósts sem forsvarsmaður Íslenska gámafélagsins sendi bæjarstjórnarmanni í desember 2011, og að fengnu minnisblaði lögmannsstofu, sem ákveðið hafi verið á bæjarráðsfundi nokkrum dögum síðar að hafna öllum tilboðum í verkið.

Var sveitarfélaginu Árborg þar af leiðandi gert að greiða Gámaþjónustunni skaðabætur og allan málskostnað, samtals rúmlega 24 milljónir króna.

Dóminn má lesa í heild hér.


Tengdar fréttir

Sveitarfélagið Ölfus neitar að afhenda útboðsgögn

Ölfus neitar að gefa Íslenska gámafélaginu gögn um útboð á sorpmálum. Gámaþjónustan bauð lægst og fékk verkið. Úrskurðarnefnd tekur undir með Íslenska gámafélaginu en sveitarfélagið ætlar að kæra þann úrskurð.

Ölfus þarf ekki að afhenda gögn

Kröfu Íslenska gámafélagsins um að fá afhent gögn vegna útboðs um sorphirðu í Ölfusi í lok árs 2013 var hafnað í Héraðsdómi Suðurlands fyrir helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×