Erlent

Áratugur liðinn frá mannskæðu flóðbylgjunni á Indlandshafi

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Mahinda Rajapakse, forseti Srí Lanka, hafði tveggja mínútna þögn í forsetahöllinni til að minnast þeirra sem létust.
Mahinda Rajapakse, forseti Srí Lanka, hafði tveggja mínútna þögn í forsetahöllinni til að minnast þeirra sem létust. vísir/afp
Tíu ár eru liðin frá því að jarðskjálfti, 9,1 að styrk, reið yfir á Indlandshafi og kom af stað flóðbylgju sem kostaði um 230 þúsund manns lífið. Staðfest er að tæplega 185 þúsund manns, af tæplega sextíu þjóðernum, hafi látist og ríflega 45 þúsunda er enn saknað.

Flóðbylgjan, sem var allt að sextán metra há er hún náði landi, olli meðal annars manntjóni á Srí Lanka, í Taílandi, Sómalíu, á Maldíve-eyjum og í Suður-Afríku. Mestur varð skaðinn hins vegar í Indónesíu þar sem yfir 130 þúsund manns létust og meira en hálf milljón varð heimilislaus.

Athafnir voru haldnar víðsvegar um Suðaustur-Asíu til að minnast hamfaranna og þeirra sem í þeim létust. Í Banda Aceh, höfuðstað Aceh-héraðs í Indónesíu sem var það svæði sem verst varð úti, stýrði Jusuf Kalla, varaforseti landsins, athöfninni. Hún fór fram við fjöldagrafir fórnarlambanna.

„Þúsundir líka lágu hér á þessum velli. Tárin sem féllu voru tár sorgar, hræðslu og ringulreiðar. Við áttum ekkert nema bænina,“ sagði Kalla. Hann bætti við að lengi hefðu staðið bardagar milli stjórnvalda og uppreisnarmanna í héraðinu en í kjölfar hamfaranna hefðu allir lagst á eitt við að endurbyggja landið. Fyrr um daginn höfðu þúsundir komið saman í mosku bæjarins og hlýtt á klerkinn. Moskan var nánast eina húsið sem enn stóð eftir flóðbylgjuna.

Þessi mynd sýnir Banda Aceh á eynni Súmötru í Indónesíu í janúar 2005 og síðan í upphafi þessa mánaðar.vísir/afp
Í Taílandi lagði forsætisráðherrann, Prayut Chan-ocha, blómsveig að lögreglubát sem skolaði tvo kílómetra upp á land með vatnsflaumnum. Báturinn er nú minnisvarði um þá sem létust en tæpur helmingur þeirra sem fórust þar í landi var erlendir ferðamenn. 

Í Srí Lanka hefur Samudra Devi-lestin verið endurbyggð en hún var meðal þess sem eyðilagðist þar í landi. Tæplega 1.300 farþegar lestarinnar létust. Í tilefni dagsins fór hún sérstaka ferð til að minnast þeirra. Ættingjar þeirra sem létust fóru um borð í lestina og staðnæmdust á þeim stað er flóðbylgjan grandaði fyrirrennara hennar.

Yfir fimm hundruð Svíar létust í flóðbylgjunni og var þeirra minnst í dómkirkjunni í Uppsölum. Í kjölfar hörmunganna hafa þau lönd sem liggja að Indlandshafi komið fyrir flóðbylgjuviðvörunarkerfum. Yfir 400 milljónum dollara hefur verið varið til verksins í 28 löndum. Hækki yfirborð sjávar í kjölfar stórra skjálfta flýr fólk strendurnar og kemur sér í var á svæði sem stendur hærra. 

Reglulega eru haldnar æfingar um hvernig bregðast eigi við sé mögulegrar flóðbylgju að vænta. Umdeilt er meðal sérfræðinga hve áreiðanlegt kerfið sé og hvort nóg hafi verið gert til að fyrirbyggja að annar eins mannskaði verði vegna flóðbylgna á þessu svæði heimsins. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×