Innlent

Árásin á Aron óupplýst: „Ef einhver liggur á upplýsingum yrði vel þegið að fá þær“

Birgir Olgeirsson skrifar
Aron var tekinn af velli gegn Tékkum og sneri ekki aftur.
Aron var tekinn af velli gegn Tékkum og sneri ekki aftur. vísir/eva björk
„Þetta er óupplýst ennþá,“ segir Hákon Sigurjónsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, um líkamsárásina sem handknattleiksleikmaðurinn Aron Pálmarssona varð fyrir í Ingólfsstræti í miðborg Reykjavíkur aðfaranótt sunnudagsins 28. desember síðastliðinn.

Sneri ekki aftur eftir höfuðmeiðsl

Aron var sleginn í andlitið og þurfti að sauma nokkur spor til að loka skurði sem hann hlaut en auk þess var hann töluvert bólginn. Aron hafði verið lykilmaður íslenska karlalandsliðsins á Heimsmeistaramótinu í Katar en þátttöku hans lauk á mótinu eftir að hann hlaut höfuðmeiðsl í tapleik gegn Tékklandi. Hann gat því ekki spilað á móti Egyptalandi í lokaleik riðlakeppninnar og var ekki með á móti Dönum í sextán liða úrslitum þar sem íslenska liðið féll úr leik.

Lítið vitað

Aron Pálmarsson hafði sjálfur greint frá því að tveir menn hefðu ráðist á hann þegar hann var á leið í leigubíl með frænda sínum. Hákon segist þó ekki geta staðfest hve margir árásarmennirnir voru. Þá sé ekki búið að hafa upp á leigubílstjóranum. Þá sagði Hákon ekki vita hve oft Aron var sleginn í andlitið. Lögreglan veit ekki hverjir árásarmennirnir eru og hefur enginn verið handtekinn eða yfirheyrður vegna málsins. Skoðaðar voru upptökur úr eftirlitsmyndavélum í grennd við vettvang árásarinnar en þær upptökur skiluðu engu fyrir rannsókn málsins. Hákon segir lögregluna hafa rætt við vitni en gat ekki gefið upp hve mörg.

„Eins og hver önnur líkamsárás“

„Þau eru nokkur, fleiri en eitt,“ segir Hákon sem segir lögregluna ekki geta úttalað sig um rannsókn málsins. „Þetta er bara eins og hver önnur líkamsárás sem verður í borginni, sumar upplýsast og sumar ekki og í augnablikinu erum við ekki með neinar upplýsingar. Ef einhver liggur á upplýsingum yrði vel þegið að fá þær. Fleira get ég ekki sagt um málið.“


Tengdar fréttir

Guðjón: Auðvitað gerir læknirinn hrikaleg mistök í máli Arons

Aron Pálmarsson lék ekki með íslenska landsliðinu í tveimur síðustu leikjum liðsins á HM í handbolta í Katar og Guðjón Guðmundsson, handboltasérfræðingur Stöðvar 2 Sports, ræddi mál Arons í HM-kvöldi á Stöð 2 Sport í gær.

Líkamsárásin á Aron mögulega örlagavaldur

Aron Pálmarsson spilar ekki með íslenska landsliðinu gegn Egyptalandi á HM í Katar í dag. Þetta staðfesti Örnólfur Valdimarsson, læknir íslenska liðsins, í gærmorgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×