Erlent

Árásarmennirnir tilheyrðu vel stæðum fjölskyldum

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá minningarathöfn í Dhaka.
Frá minningarathöfn í Dhaka. Vísir/AFp
Lögreglan í Bangladess hefur nefnt fimm af árásarmönnum sex sem myrtu tuttugu manns á kaffihúsi í Dhaka í Bangladess um helgina. Innanríkisráðherra landsins segir að þeir hafi tilheyrt öfgahópi sem hafi verið bannaður í rúman áratug. Einn af mönnunum sex er þó mögulega sagður vera saklaust fórnarlamb.

Einn til viðbótar hefur verið handtekinn en ekki liggur fyrir hvernig eða hvort hann kom að árásinni.

Mennirnir réðust þungvopnaðir inn í kaffihús á föstudaginn og héldu fjölda fólks í gíslingu í tólf klukkustundir. Tuttug gíslar voru myrtir og 30 særðust. Þrettán var bjargað af lögreglu sem gerði árás á kaffihúsið. Tveir lögregluþjónar létu einnig lífið þegar mennirnir réðust á kaffihúsið. 

Engar kröfur voru settar fram á meðan á árásinni stóð. Mennirnir neituðu að tala við lögreglu og margir þeirra sem létu lífið í árásinni höfðu verið stungnir eða skornir til bana.

Níu Ítalar létu lífið, sjö frá Japan, einn frá Bandaríkjunum og einn frá Indlandi.

Höfðu verið týndir í hálft ár

Nú hefur komið í ljós að þrír af árásarmönnunum voru undir 22 ára aldri og höfðu verið týndir í sex mánuði. Þá hefur vakið athygli að mennirnir komu úr tekjuháum fjölskyldum, voru í dýrum einkaskólum og einn þeirra var sonur háttsetts embættismanns. Þeir falla ekki í hefðbundin mót ungra öfgamanna.

Flestir vígamenn ISIS koma úr samfélögum lágtekjufólks og hafa greinendur lengi talið trúarstaði í Bangladess verið helstu vígi manna sem finna fólk til að ganga til liðs við vígasamtök.

Íslamska ríkið hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni, en yfirvöld Bangladess segja samtökin ekki vera með fótfestu í landinu. Þrátt fyrir að fréttaveita ISIS hafi birt myndir af mönnunum þar sem fimm þeirra hafa stillt sér upp vopnaðir, fyrir framan myndavél.

„Þeir eru meðlimir Jamaeytul Mujahdeen Bangladesh. Þeir tengjast ISIS ekki á nokkurn hátt,“ sagði Asaduzzaman Khan, innanríkisráðherra Bangladess, við blaðamenn í dag. Hann sagði mennina vera úr vel stæðum fjölskyldum og að þeir hefðu orðið öfgamenn þar sem það væri orðið að tísku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×