Erlent

Árásarmaðurinn í München hafði glímt við andleg veikindi

Atli Ísleifsson skrifar
Fjölmargir hafa komið fyrir blómum og kertum fyrir utan verslunarmiðstöðina til að minnast hinna látnu.
Fjölmargir hafa komið fyrir blómum og kertum fyrir utan verslunarmiðstöðina til að minnast hinna látnu. Vísir/AFP
Lögregla í þýsku borginni München hefur beðið almenning um að senda sér allar þær myndir, myndskeið og hljóðupptökur sem til eru af árásinni í verslunarmiðstöðinni í borginni síðdegis í gær.

Lögregla greindi frá því á fréttamannafundi í morgun að tíu manns hafi farist og 27 særst, þar af tíu alvarlega, eftir að átján ára Þjóðverji af írönskum uppruna hljóp um og skaut gesti verslunarmiðstöðvarinnar Olympia-Einkaufszentrum.

Þrjú fórnarlambanna eru konur og hinir karlmenn. Tvö fórnarlambanna voru fimmtán ára, þrír fjórtán ára, eitt sautján ára, eitt nítján ára, eitt tvítugt og einn 45 ára. Öll voru þau frá München.

Árásarmaðurinn flúði af vettvangi og fannst látinn nokkru síðar þar sem hann hafði svipt sig lífi. Ekkert kveðjubréf hefur fundist, en hann var vopnaður 9mm Glock skammbyssu sem hann hafði ekki leyfi fyrir.

Fæddur og uppalinn í München

Greint var frá því að pilturinn hafi verið einn að verki og ekki haft nein tengsl við hryðjuverkasamtökin ISIS. Hann hafi verið fæddur og uppalinn í München.

Lögregla mun á næstu dögum ræða við fjölskyldu og vini piltsins til að fá frekari upplýsingar, en hann mun hafa glímt við þunglyndi og leitað hjálpar vegna veikindanna. Hann hafi ekki komið við sögu lögreglu áður. Foreldrar dreingsins voru í of miklu áfalli í gær til að hægt hafi verið að yfirheyra þá.

Lögregla greindi jafnframt frá því að hann hafi verið heltekinn af fjöldamorðum og skotárásum í skólum. Þannig hafi fundist greinar um slíkt á heimili piltsins.

Merkel frestar fríi

Innanríkisráðherrann Thomas de Maiziere hefur fyrirskipað að öllum fánum við opinberar byggingar verði flaggað í hálfa stöng til að minnast hinna látnu.

Angela Merkel Þýskalandskanslari hefur frestað fyrirhuguðu sumarfríi sínu í Ölpunum til að funda með þjóðaröryggisráði landsins og mun ávarpa þjóð sína síðar í dag.

Óhætt að opna verslanir

Lögregla segir að óhætt sé að opna verslanir í borginni og mun verslunarmiðstöðin þar sem árásin átti sér stað, Olympia-Einkaufszentrum, opna á ný innan skamms. Almenningssamgöngur hafa verið teknar upp að nýju eftir að þær lágu niðri þegar lögregluaðgerð gærdagsins stóð yfir.

Fjölmargir hafa komið fyrir blómum og kertum fyrir utan verslunarmiðstöðina til að minnast hinna látnu.

Á fréttamannafundi morgunsins var greint frá því að 4.300 símtöl hafi borist neyðarlínunni í tengslum við árásina.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×