Innlent

Árásarmaðurinn er látinn

Samúel Karl Ólason skrifar
Flanagan tók upp árás sína og birti myndbandið á samfélagsmiðlum.
Flanagan tók upp árás sína og birti myndbandið á samfélagsmiðlum. Vísir/AFP
Vester Flanagan var úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi í dag, eftir að hann skaut sig, umkringdur af lögreglumönnum. Flanagan sem einnig gekk undir nafninu Bryce Williams, skaut tvær manneskjur til bana og særði eina konu í beinni útsendingu í morgun. Áætlað er að um 40 þúsund manns hafi fylgst með útsendingunni.

Um er að ræða fréttakonuna Alison Parker og myndatökumanninn Adam Ward hjá WDBJ-TV sem létu lífið og viðmælandi þeirra særðist í árásinni.

Samkvæmt AP fréttaveitunni segist lögreglan ekki vita hvert tilefni árásarinnar var, en Flanagan vann áður hjá sömu fréttastofu. Hann hafði áður kvartað yfir kynþáttafordómum á vinnustaðnum. Forsvarsmenn fréttastofunnar segja að hann hafi verið erfiður í umgengni og því hefði honum verið sagt upp.

Sagði Charlston árásina vera kveikjuna

Á vef ABC News er sagt frá því að maður sem sagðist vera Flanagan hafi hringt í fréttastofuna nokkrum sinnum á síðustu vikum. Hann sagðist vilja bjóða þeim fréttaskot og faxa til þeirra upplýsingar. Þegar starfsmenn fréttastofunnar mættu til vinnu í morgun, var 23 blaðsíðna skjal í faxtækinu.

Skömmu seinna hringdi hann og sagðist hafa skotið tvær manneskjur. Hann sagði að lögreglan væri á eftir honum og skellti á.

Hann kallar þetta skjal sjálfsmorðsbréf til vina og fjölskyldu. Þar skrifar hann að hann hafi orðið fyrir einelti, fordómum og kynferðislegu áreiti í vinnunni þegar hann starfaði hjá WDBJ-TV. Að honum hefði verið mismunað fyrir að vera svartur og samkynhneigður.

„Þetta hljómar eins og ég sé reiður...Ég er það og ég hef rétt á því. En þegar ég yfirgef þessa jörð, er friður eina tilfinningin sem ég vil finna.“

Þar að auki segist hann hafa ákveðið að skjóta Parker og Ward vegna fjöldamorðsins í kirkjunni í Charlston. Hann skrifaði að Jehóva hefði talað við sig og sagt sér að bregðast við.

Seinna í skjalinu hyllti hann Seung Hui Cho, sem framdi fjöldamorð í Virginia Tech skólanum, sagðist líta upp til nemendanna tveggja sem frömdu fjöldamorð í Columbine skólanum.

„Skotárásin í kirkjunni var kornið sem fyllti mælinn, en reiði mín hefur verið að byggjast upp jafnt og þétt. Ég hef verið mennsk púðurtunna um nokkurt skeið og hef einungis beðið eftir því að springa.“

Unnu bæði með mökum sínum

Alison Parker hafði nýverið byrjað að búa með kærasta sínum og samstarfsmanni, Chris Hurst. Hún var 24 ára gömul. Adam Ward var 27 ára gamall. Fyrr um morguninn hafði hann verið að fagna með samstarfsmönnum sínum og unnustu, sem var að vinna sinn síðasta dag þar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×