Innlent

Árangurslaus leit að Birnu: Hún er alltaf „online“

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Fjöldi fólks, vinir og vandamenn, leitaði að Birnu Brjánsdóttur í Hafnarfirði í gær. Birna sást síðast aðfaranótt laugardagsins. Rannsókn lögreglu hefur litlu skilað.
Fjöldi fólks, vinir og vandamenn, leitaði að Birnu Brjánsdóttur í Hafnarfirði í gær. Birna sást síðast aðfaranótt laugardagsins. Rannsókn lögreglu hefur litlu skilað. Vísir/Eyþór
Vinir, skyldmenni og velunnarar leituðu í gær að Birnu Brjánsdóttur en ekkert hefur spurst til ferða hennar í tvo sólarhringa. Ekki þótti unnt að hefja allsherjarleit í gær.

Birna er fædd 1996, rauðhærð, 170 sentímetrar á hæð og um 70 kíló. Hún var klædd í svartar gallabuxur, gráa peysu, svartan flísjakka með hettu og svarta Dr. Martens skó þegar síðast sást til hennar. Það var þegar hún fór út af skemmtistaðnum Húrra um klukkan fimm á laugardagsmorgun.

Unnt var að rekja ferðir síma hennar í Flatahraun í Hafnarfirði en síðan hefur verið slökkt á honum. Í upphafi leitaði fólk því í Hafnarfirði en einnig var leitað í Öskjuhlíð og Heiðmörk.

Birna Brjánsdóttir
Lögreglu- og björgunarsveitarmenn hafa hingað til ekki tekið þátt í leitinni þar sem talið var að skortur væri á vísbendingum um ferðir Birnu. Þó að sími hennar hafi sent frá sér merki í Hafnarfirði sé engin leið að vita hvort hún hafi verið þar á ferð, hvort hún hafi verið fótgangandi eða í bíl, eða símanum hafi hreinlega verið stolið.

Í stöðuuppfærslu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem birtist á tíunda tímanum í gærkvöldi, var ítrekað að enn væri lýst eftir Birnu. Málið væri í algerum forgangi og hefðu starfsmenn embættisins skoðað upptökur úr eftirlitsmyndavélum og símagögn nær sleitulaust í allan gærdag. Fundað var um málið í gærkvöldi til að ákveða næstu skref.

Faðir Birnu, Brjánn Guðjónsson, deildi myndbandinu að neðan í þeirri von að það gæti hjálpað til við leitina.

„Sá möguleiki er fyrir hendi að símanum hennar hafi verið stolið. Síðustu skilaboð úr honum voru send klukkan 3 en hann sendir síðan frá sér merki í Hafnarfirði rúmum tveimur tímum síðar,“ segir Sigurlaug Hreinsdóttir, móðir Birnu. Að sögn Sigurlaugar sást til dóttur hennar ganga upp Laugaveginn skömmu eftir að hún fór af Húrra en það fæst ekki staðfest af lögreglu.

„Þetta er úr karakter að hverfa svona. Hún er alltaf „online“ og í samskiptum við vinkonur sínar. Það er yfirleitt ekkert mál að ná í hana ef maður þarf,“ segir Sigurlaug. Lögregla biður þá sem hafa upplýsingar um ferðir Birnu að hafa samband í síma 444-1000.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×