Lífið

Áramótaspá Siggu Kling kemur á föstudaginn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigga verður einnig í beinni á Facebook og svarar spurningum lesenda.
Sigga verður einnig í beinni á Facebook og svarar spurningum lesenda.
Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en áramótaspá hennar mun birtast í Fréttablaðinu og á Vísi á föstudaginn.

Sigga leggur leggja áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýta sér orkuna, klappa sér á bakið og elska lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.

Sigga Kling verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi klukkan 14:00 á föstudaginn og geta lesendur sent inn spurningar í athugasemdarkerfinu á Facebook. Hægt verður að spyrja Siggu um allt á milli himins og jarðar.

Sigga býður upp á þjónustunámskeið fyrir fyrirtæki af öllum t0ga: Hópefli – hressingarfyrirlestur sem getur verið hentugur í hádegishlé eða í byrjun vinnudags. Einnig tekur hún að sér hópa sem vilja eiga jákvæða og gleðilega kvöldstund. Þeir sem hafa áhuga gefa haft samband við Siggu með því að senda tölvupóst á siggakling@gmail.com 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×