Innlent

Áramótabrennur á Akureyri, í Hrísey og Grímsey

Atli Ísleifsson skrifar
Í tilkynningu frá Akureyrarbæ segir að kveikt verði í brennunni klukkan 20.30 en flugeldasýningin hefst klukkan 21.
Í tilkynningu frá Akureyrarbæ segir að kveikt verði í brennunni klukkan 20.30 en flugeldasýningin hefst klukkan 21. Vísir/Pjetur
Árleg áramótabrenna á Akureyri verður við Réttarhvamm á gamlárskvöld og þar verður einnig flugeldasýning. Í tilkynningu frá Akureyrarbæ segir að kveikt verði í brennunni klukkan 20.30 en flugeldasýningin hefst klukkan 21.

Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar sér um brennuna og björgunarsveitin Súlur stendur fyrir flugeldasýningunni í boði Norðurorku og fleiri fyrirtækja. „Að venju má búast má við mikilli umferð við Réttarhvamm á gamlárskvöld og því er mælt með því að fólk leggi tímanlega af stað til að njóta brennunnar og flugeldanna. Einnig mætti hugsa sér að fara þetta fótgangandi ef fólk býr í hverfunum næst Réttarhvammi.“

Í Hrísey verður kveikt í áramótabrennunni klukkan 17 á gamlársdag í námunni fyrir austan Stekkjanef. Áramótabrennan í Grímsey verður klukkan 20 við norðurendann á tjörninni og þar verður flugeldasýning í boði kvenfélagsins Baugs og Kiwanisklúbbsins Gríms. „Venju samkvæmt verður áramótafagnaður haldinn á veitingastaðnum Kríunni í Grímsey og hefst eftir miðnætti.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×