Erlent

Ár liðið frá því að Boko Haram rændu rúmlega 200 skólastúlkum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mál stúlknanna 219 vakti gríðarlega athygli og mikla reiði um allan heim en fjöldamörg mótmæli hafa verið haldin víða um heim síðastliðið ár vegna hryðjuverka Boko Haram.
Mál stúlknanna 219 vakti gríðarlega athygli og mikla reiði um allan heim en fjöldamörg mótmæli hafa verið haldin víða um heim síðastliðið ár vegna hryðjuverka Boko Haram. Vísir/AFP
Þess verður minnst víða um heim í dag að ár er liðið síðan liðsmenn hryðjuverkasamtakanna Boko Haram rændu rúmlega 200 stúlkum úr heimavistarskóla sínum í bænum Chibok í Nígeríu. Meðal annars verður farið í fjöldagöngur í Abuja, höfuðborg Nígeríu, og London og Washington.

Málið vakti gríðarlega athygli og mikla reiði um allan heim. Kassamerkið #BringBackOurGirls tröllreið til að mynda öllum samfélagsmiðlum en það var notað til að lýsa yfir stuðningi við stúlkurnar og krefja alþjóðasamfélagið um aðgerðir.

Bandaríkin, Kína og önnur stórveldi hétu því meðal annars að aðstoða ríkisstjórn Nígeríu við að finna stúlkurnar. Stúlkurnar 219 hafa hins vegar aldrei fundist og eru að öllum líkindum enn í haldi hryðjuverkamannanna.

Nær ekkert hefur heldur sést til þeirra síðastliðið ár en kona sem tjáir sig í viðtali við BBC segist hafa séð rúmlega 50 stúlkur úr heimavistarskólanum á lífi fyrir þremur vikum.

Konan segist hafa séð stúlkurnar í bænum Gwoza í norðausturhluta Nígeríu stuttu áður en liðsmenn Boko Haram voru hraktir þaðan af stjórnarliðum. Talið er að þeir hafi flúið til Mandara fjallanna í grennd við landamæri Kamerúns en ekki er víst hvort þeir hafi tekið stúlkurnar með.

Konan segir þær hafa verið klæddar fatnaði múslimakvenna og að þær hafi verið í fylgd liðsmanna Boko Haram.

Abubakar Shekau, leiðtogi samtakanna, hefur áður sagt að stúlkurnar hafi verið látnar taka íslamstrú og þær síðan giftar. Shekau hefur lýst yfir stuðningi við hryðjuverkasamtökin Íslamskt ríki sem hefur einnig staðið fyrir mannráni í Írak og Sýrlandi.


Tengdar fréttir

Rændu tvöhundruð skólastúlkum í Nígeríu

Allt að 200 ungum stúlkum í skóla í Borno héraði í Nígeríu hefur verið rænt. Á heimasíðu breska ríkisútvarspins segir frá því að hópur vopnaðra manna hafi ruðst inn í skólann að næturlagi og skipað stúlkunum upp á vörubílspalla.

Segist ætla að selja stúlkurnar

Nígerísku samtökin Boko Haram segjast bera ábyrgð á hvarfi 223 skólast´lukna sem saknað hefur verið í um þrjár vikur.

Biður Obama að hjálpa Nígeríu

Forseti Nígeríu, Goodluck Jonathan, hefur biðlað til Baracks Obama Bandaríkjaforseta að aðstoða landið í þeim vanda sem það stendur nú frammi fyrir. Herskáir íslamistar hafa farið um með miklu ofbeldi upp á síðkastið.

Mikil reiði vegna týndu skólastúlknanna

Barack Obama Bandaríkjaforseti og David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segjast ætla að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að finna skólastúlkurnar tvö hundruð sem hryðjuverkasamtökin Boko Haram rændu í norðurhluta Nígeríu fyrir um mánuði síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×