Lífið

Aprílspá Siggu Kling – Vog: Segðu takk á leiðinni á klósettið á morgnana

Elsku hjartans Vogin mín. Eina leiðin til þess að ná árangri í þessu lífi er að fylgja hjartanu, það hefur nefnilega aldrei rangt fyrir sér.

Þú átt það til, elskan mín, að taka of hvatvísar ákvarðanir þar sem hjartað fylgir ekki með og þá verður þú svo pirruð út í allt og alla en það góða er að þessi pirringur stendur nú yfirleitt ekki lengi yfir hjá þér.

Það er alveg ljóst að apríl mun færa þér allt sem þú hefur verið að stefna að undanfarið.

Þú þarft að skoða það skýrt og vera með það á hreinu að það gerist í raun ekki nokkur skapaður hlutur nema þú gerir hann sjálf.

Taktu stjórnina í þínar hendur og settu tímapressu á þig vegna þess að stress er mikill orkugjafi fyrir þig.

Það eru búnar að eiga sér stað margar litlar breytingar í kringum þig og þú þarft að vera meðvituð um að í raun er allt að ganga ágætlega.

Það er nefnilega þannig að þú missir máttinn þinn þegar kvíðinn sækir að þér en mundu það elskan mín, að það er bara blekking hugans.

Þegar að þú ert á fullu í vinnu þá geislar ekkert og enginn eins mikið og vogin.

Grasið verður sko miklu grænna þegar þú vökvar það svo þú skalt gefa miklu meira af þér en þú tekur á næstunni og þá færðu bestu útkomuna.

Ef þú lítur til baka eins og tvö ár þá sérð þú að þér gengur miklu betur núna svo sýndu þakklæti fyrir það.

Takk, takk, takk! skalt þú segja á leiðinni á klósettið þegar þú vaknar á morgnana og þá eflist orkan þín.

Það er ekkert sem heitir að hegða sér rétt svo þú skalt sleppa fram af þér beislinu og gera það sem að þig langar að gera. Útkoman úr því verður skemmtilegur mánuður og mundu það, elsku vogin mín, að það eru engar alvöru hindranir í veginum.

Lífið er gott,

þín Sigga Kling

Frægir í voginni: Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur, Hjalti flugþjónn, Ingi í Sign, Jón Axel Ólafsson athafnamaður, Matt Damon leikari, Íris Berg, fatahönnuðurinn minn, Mary Poppins, Steingrímur Sævarr Ólafsson fjölmiðlaráðgjafi, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, Hanna Birna Kristjánsdóttir þingkona.


Tengdar fréttir

Aprílspá Siggu Kling – Ljón: Ert eins heitt og sólin!

Elsku dásamlega Ljónið mitt. Þú hefur svo líflegt og skemmtilegt ímyndunarafl. Og drífandi áhrif á aðra og svo skemmtilegan frásagnarhátt að þú getur fengið hvern sem er til þess að trúa því sem þú segir. Ef þessir eiginleikar flokkast ekki sem kostir þá eru kostir ekki til!

Aprílspá Siggu Kling – Hrútur: Ferð á fljúgandi fart!

Elsku Hrúturinn minn. Það er búinn að vera töluverður titringur í kringum þig. Þessi titringur myndar spennu og fyllir þig af ákefð yfir lífinu. Á móti kemur stress sem þú þarft að nýta þér sem orkulind.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×