Lífið

Aprílspá Siggu Kling – Vatnsberi: Ástin skiptir þig öllu máli

Elsku Vatnsberinn minn. Láttu ekki gamlar og hundleiðinlegar tilfinningar ná tökum á þér því þær eru bara blekking.

Það er búinn að vera mikill hraði og ýmislegt skemmtilegt að gerast í þinni ævisögu sem þú ert að skrifa sjálfur með hjálp alheimsins.

Þú ert búinn að vera á ferðalagi sem þér finnst þú hafa verið ofboðslega þreyttur á en svo líka ótrúlega kraftmikill, því sveiflurnar eru búnar að vera töluverðar hjá þér.

Það sem þú þarft að vita og bera með þér er það að þú ert miklu, miklu sterkari en þú gerir þér grein fyrir.

Þú skalt nota þá möntru til þess að hjálpa þér í gegnum þennan kafla í ævisögunni þinni. Segðu við þig: Ég er miklu, miklu sterkari en ég geri mér grein fyrir.

Svo ert þú líka alveg tvöfalt hugrakkari en þú gerir þér grein fyrir og þegar á reynir, sem er núna, munu þessi element gera það sem þarf til þess að þú komir svo blómstrandi og með útbreidda armana í gegnum allt álag sem hefur lamið á sálina á þér.

Láttu ekki slúður rífa úr þér sálina því þeir sem bera hin leiðinlegu tíðindi eru líklega ekki þér vinveittir og kannski viltu heldur ekki að þeir séu það. Þér getur fundist eins og þú sért háður einstaklingum í kringum þig, en það sanna er að þú þarft ekki á svo mörgum að halda.

Þú munt bera ábyrgð á líðan þinni og eldmóður og ólgandi kraftur mun gera þér kleift að finna það að þú hafir stjórnina og að finna það að þú hafir gert allt rétt.

Það eru ástarörvar í kringum þig og mikil spenna sérstaklega þegar líða tekur á apríl fyrir þá sem eru á lausu. Og mundu það elskan mín, að það er allt í lagi að skoða aðeins í kringum sig, það gerir lífið bara skemmtilegra!

Þú munt finna þinn prins eða prinsessu fyrr en þú heldur og ástin skiptir öllu máli fyrir þig Vatnsberinn minn vegna þess að lífið er búið til úr ást.

Lífið er gott,

Þín Sigga Kling

Frægir vatnsberar: Pacas hans Begga, Geir Sveinsson handknattleiksþjálfari, Halla himintungl, Clark Gable leikari, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir borgarfulltrúi, Yoko Ono, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Katrín Jakobsdóttir þingkona, Hilmir Snær Guðnason leikari, Rikka sjónvarpskona, María Ólafsdóttir Júróvisjónstjarna, Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kastljóss, Gunna Dís útvarpskona, Höddi Magg, Andrea Róberts, mannauður.


Tengdar fréttir

Aprílspá Siggu Kling – Ljón: Ert eins heitt og sólin!

Elsku dásamlega Ljónið mitt. Þú hefur svo líflegt og skemmtilegt ímyndunarafl. Og drífandi áhrif á aðra og svo skemmtilegan frásagnarhátt að þú getur fengið hvern sem er til þess að trúa því sem þú segir. Ef þessir eiginleikar flokkast ekki sem kostir þá eru kostir ekki til!

Aprílspá Siggu Kling – Hrútur: Ferð á fljúgandi fart!

Elsku Hrúturinn minn. Það er búinn að vera töluverður titringur í kringum þig. Þessi titringur myndar spennu og fyllir þig af ákefð yfir lífinu. Á móti kemur stress sem þú þarft að nýta þér sem orkulind.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×