Lífið

Aprílspá Siggu Kling – Steingeit: Hlæðu í gegnum næsta mánuð

Elsku Steingeitin mín. Það er alveg magnað hvað lífið getur raðað hlutunum hárrétt upp fyrir þig.

Þú stressast og stressast, svitnar og svitnar en svo allt í einu sérðu bara “nei, mikið rosalega er þetta spennandi,” og það er akkúrat sú tíð sem þú þarft núna, elsku Steingeitin mín.

Þú ert búin að efla svo margt í kringum þig og búin að vera svolítill miðpunktur athyglinnar. Hversu gaman er að hafa þessa útgeislun, þú lítur eithvað svo rosalega vel út, hefur þú tekið eftir því sjálf?

Það eina sem getur slegið þig út af laginu er ef þú ætlar að vera of geðstirð og hafa aga á öllu í kringum þig þá verður allt svo fúlt og leiðinlegt og þú hættir að skína.

Eina hindrunin sem mun standa í vegi þínum í næsta mánuði er skapið. Þegar þú ert glöð þá rífur þú alla upp með þér og þú stendur uppi sem sigurvegari. En þú þarft að halda þessari gleðiorku til streitu næstu fjórar vikurnar.

Það þýðir ekki að þú megir ekki brjálast, en bara í smástund inni í bílnum, niðri í fjöru eða á einhverjum svoleiðis stað. Alls ekki fyrir framan neina manneskju.

Það eru litlu hlutirnir í lífinu sem skipta öllu máli því þegar þú horfir til baka í lífinu þínu, þá sérðu að það voru í raun og veru stóru hlutirnir.

Þú veist alltaf hjartað mitt hvenær þú ert óhamingjusöm, en átt oft erfitt með að skynja og þakka fyrir þegar þú ert hamingjusöm.

Ástin er allt í kringum þig og þú skalt hlæja þig í gegnum næsta mánuð. Því að þú ert lífið, og lífið er gott!

Þín,

Sigga Kling

Frægar steingeitur: Guðjón Pétur Lýðsson markakóngur, Svava Johansen í Sautján, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, dr. Kristín Ólafsdóttir, Jón Gnarr, Elvis Presley, Gunnar Þórðarson, Tómas Guðbjartsson læknahetja, Lovísa Tómas, Dorrit Moussaieff forsetafrú, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, Jesús og Simmi á Fabrikkunni.


Tengdar fréttir

Aprílspá Siggu Kling – Ljón: Ert eins heitt og sólin!

Elsku dásamlega Ljónið mitt. Þú hefur svo líflegt og skemmtilegt ímyndunarafl. Og drífandi áhrif á aðra og svo skemmtilegan frásagnarhátt að þú getur fengið hvern sem er til þess að trúa því sem þú segir. Ef þessir eiginleikar flokkast ekki sem kostir þá eru kostir ekki til!

Aprílspá Siggu Kling – Hrútur: Ferð á fljúgandi fart!

Elsku Hrúturinn minn. Það er búinn að vera töluverður titringur í kringum þig. Þessi titringur myndar spennu og fyllir þig af ákefð yfir lífinu. Á móti kemur stress sem þú þarft að nýta þér sem orkulind.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×