Lífið

Aprílspá Siggu Kling – Sporðdreki: Ástin kemur á hárréttum tíma

Elsku Sporðdrekinn minn. Það er eins og sé búið að vera eitthvað svo mikil lægð yfir þér undanfarið. Árekstrar, álag og bjartsýnin er ekki alveg búin að vera í fyrirrúmi.

Þú, með þitt stóra hjarta, ert bara svolítið hissa á öllu þessu drama en það eru strax að koma jákvæðar breytingar ef við kíkjum í kringum 10. apríl.

Þetta eru ekki búnar að vera tilviljanir heldur er veröldin að setja inn nýja orku hjá þér og það breytir oft velferð manns.

Það er nefnilega þannig með þig að þó að erfiðleikarnir banki upp á þá nærð þú alltaf að forða þér.

Þú þarft að einbeita þér að því að gleyma gærdeginum og hafa ekki áhyggjur af morgundeginum. Hann leysist því þú nærð alltaf að forða þér undan erfiðleikum!

Það er þolinmæðin og þrautseigjan sem eiga eftir að gefa þér stóra útborgun og þó að þú sjáir ekki alveg hvernig þú ferð að hlutunum, þá skaltu vera alveg pollrólegur, því apríl leysir þetta.

Þú þarft að nota hæfileika þína meira. Að hrósa öðrum í einlægni og gefa fólki sem þú hefur ekki talað við undanfarið tíma. Framinn er þér mjög mikilvægur og þú átt eftir að fara inn í ábyrgðarstöðu eða öðlast meiri ábyrgð og í því blómstrar þú.

Ef þú ert í sambandi mun allt ganga betur en það hefur gert og sameiningin verður sterkari en þú hefur fundið lengi. Ef þú ert á lausu þarftu að vera í sterku sambandi við sjálfan þig og passa þig á því að verða ekki heltekinn af því að verða ástfanginn, því ástin kemur á hárréttum tíma, svo vertu alveg rólegur.

Sterkasta mottóið fyrir þig í þessu mánuði er: Þú ert algjörlega óbugandi og lífið er gott.

Knús og koss,

Þín Sigga Kling

Frægir sporðdrekar: Dísa í World Class, Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Scarlett Johansson leikkona, Whoopie Goldberg leikkona, Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona, Emmsjé Gauti rappari.


Tengdar fréttir

Aprílspá Siggu Kling – Ljón: Ert eins heitt og sólin!

Elsku dásamlega Ljónið mitt. Þú hefur svo líflegt og skemmtilegt ímyndunarafl. Og drífandi áhrif á aðra og svo skemmtilegan frásagnarhátt að þú getur fengið hvern sem er til þess að trúa því sem þú segir. Ef þessir eiginleikar flokkast ekki sem kostir þá eru kostir ekki til!

Aprílspá Siggu Kling – Hrútur: Ferð á fljúgandi fart!

Elsku Hrúturinn minn. Það er búinn að vera töluverður titringur í kringum þig. Þessi titringur myndar spennu og fyllir þig af ákefð yfir lífinu. Á móti kemur stress sem þú þarft að nýta þér sem orkulind.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×