Lífið

Aprílspá Siggu Kling – Meyja: Fæddist til þess að hafa gaman

Elsku Meyjan mín. Þú ert svo skemmtilegur kokteill að það er ekki séns á því að leiðast þegar maður er að hanga með þér.

Þú ert svo fjölbreytt í öllu því sem þú tekur þér fyrir hendur og gerir allt með ástríðuna í botni.

Þú átt það til að elska mikið en svo getur þú líka hatað. Og þú átt það til að ráðast svolítið gegn þér og það er svo mikilvægt að þú sért meðvituð um það að þú þarft að dekra miklu meira við þig á næstunni.

Þú þarft að gera það að þínu verkefni og vera meðvituð um að þú ert númer eitt, tvö og þrjú, annars gengur planið bara ekki upp.

Þú ert alveg að skila af þér þínum verkefnum óaðfinnanlega, ekki láta það rífa þig niður þegar það er mikið að gera því það eru smáatriðin sem að stressa þig alltof mikið og vittu til: Þau eiga eftir að leysast af sjálfu sér.

Það á eftir að vera hörkupúl í kringum þig en þú átt eftir að elska það því að á meðan ertu allavega ekki að hugsa um einhverja vitleysu sem dregur þig niður.

Þú átt eftir að finna fyrir nýrri ábyrgð. Einhverju sem þú bjóst ekki við að finna.

Það er ótrúlega mikilvægt að þú segir það skýrt hvað þú vilt því að það eina sem getur lamið þig niður er misskilningur eða einhverjar villur í samskiptum.

Þú fæddist hérna á jörðina til þess að hafa gaman, elskan mín, svo skemmtu þér meira, elskaðu meira og taktu þetta líf alls ekki of alvarlega. Þú kemst hvort sem er ekki lifandi frá því!

Eins og kom fram í síðustu spá er Júpíter inn í þínu merki fram á haust og Júpíter merkir þenslu og hún er að flétta lífsvefinn þinn og þú getur tekið miklu meiri áhættu en þig hefur nokkurn tímann dreymt um að gera. Og þetta á líka við í ástinni og þú þarft að finna þér maka sem er duglegur, hefur útsjónarsemi og gefur þér það “space” sem þú þarft.

Lífið er gott,

Þín Sigga Kling

Frægar meyjur: Ragna Lóa Stefánsdóttir íþróttakona, Manuela Ósk fyrirsæta, Björk Eiðsdóttir ritstýra, Andrea fatalistamaður, Claudia Schiffer fyrirsæta, Edda Björgvinsdóttir leikkona, Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, ritstjóri og tískugúrú, Herdís Jóhannesdóttir athafnakona, Beyoncé Knowles söngkona, Gylfi Þór Sigurðsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona, Annie Mist crossfittari, Logi Pedro Stefánsson tónlistarmaður.


Tengdar fréttir

Aprílspá Siggu Kling – Hrútur: Ferð á fljúgandi fart!

Elsku Hrúturinn minn. Það er búinn að vera töluverður titringur í kringum þig. Þessi titringur myndar spennu og fyllir þig af ákefð yfir lífinu. Á móti kemur stress sem þú þarft að nýta þér sem orkulind.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×