Lífið

Aprílspá Siggu Kling – Bogmaður: Mestu mistökin að stressa sig yfir að gera mistök

Elsku Bogmaðurinn minn. Þú hamast og hamast og finnst alltaf að þú eigir að vera kominn lengra en þú ert kominn.

Þú slærð þig með svipu á bakið og lemur þig niður og það er það eina sem er að gerast. Því um leið og þú skoðar hvað þú hefur afrekað á síðustu sex mánuðum og hversu mikið þær breytingar hafa leitt til góðs þá getur þú slakað á og sleppt svipunni.

Það eru svolitlar peningaáhyggjur í kringum þig en þú átt eftir að fara upp aftur fljótlega og öðlast meiri pening orku. Það getur verið alveg dásamlegt að hafa þá orku!

Mestu mistökin sem þú gerir er að vera alltaf á nálum yfir því að gera mistök. Hafðu það í huga.

Mikilvægustu breytingarnar í lífinu okkar gerast oft með stórum og miklum atburðum og þú ert að fara inn í tíma þar sem þú sérð að stórir og miklir atburðir eru að koma.

Semdu frið við alla, því það fer þér ekki að vera stríðsmaður. Talaðu vel um þá sem þú þolir ekki og þá verða þeir með þér í liði.

Vorið á eftir að sýna þér hvað þú ert heppinn að vera bogmaður því vorið er þinn tími þar sem allt byrjar að vaxa og gróa.

Hinn frábæra pláneta Júpíter mun hjálpa þér að ná þeim árangri sem þig vantar áður en sumarið kemur.

Lífið er gott, elsku Bogmaðurinn minn!

Þín,

Sigga Kling

Frægir bogmenn: Ingvar E. Sigurðsson leikari, Björgvin Franz Gíslason leikari, Edda Heiðrún Backman leikkona, Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona, Sigrún í Gyðja Collecton, Steindi, Bryndís Ásmundsdóttir, leik- og söngkona, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, fjallkona og leikkona, Logi Bergmann Eiðsson sjónvarpsmaður, Jói á Fabrikkunni, Sigga Dögg kynfræðingur, Hemmi, hársnillingur á Módus, Lovísa hönnuður hjá Kjólar og konfekt.


Tengdar fréttir

Aprílspá Siggu Kling – Ljón: Ert eins heitt og sólin!

Elsku dásamlega Ljónið mitt. Þú hefur svo líflegt og skemmtilegt ímyndunarafl. Og drífandi áhrif á aðra og svo skemmtilegan frásagnarhátt að þú getur fengið hvern sem er til þess að trúa því sem þú segir. Ef þessir eiginleikar flokkast ekki sem kostir þá eru kostir ekki til!

Aprílspá Siggu Kling – Hrútur: Ferð á fljúgandi fart!

Elsku Hrúturinn minn. Það er búinn að vera töluverður titringur í kringum þig. Þessi titringur myndar spennu og fyllir þig af ákefð yfir lífinu. Á móti kemur stress sem þú þarft að nýta þér sem orkulind.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×