Fréttir

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sósíal­isti fékk boðs­ferð til Kína

Sæþór Benjamín Randalsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands, hefur fengið boð í átta daga ferð til Kína. Sæþór þakkar djúpan áhuga sinn á Kína því að hann hafi verið valinn sem fulltrúi Íslands á ráðstefnu fyrir unga evrópska leiðtoga. Sæþór hlakkar til að upplifa það öryggi sem ríkir í Kína og ferðast með háhraðlest.

Innlent
Fréttamynd

Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf

Hættulegt sníkjudýr hefur greinst í Texas og Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum og óttast Bandaríkjamenn að afleiðingarnar fyrir nautgriparækt þar geti orðið gífurlega alvarlegar. Um er að ræða flugu sem leggur egg í lifandi hold og étur það en áratugir eru síðan flugunni var útrýmt í Bandaríkjunum með því að nota geislavirkar flugur af sömu tegund.

Erlent
Fréttamynd

„Mjög venju­legt sumar­veður“

Úrkomuna, sem hefur leikið íbúa á suðvesturhorninu grátt síðustu daga, segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, vera „mjög venjulegt sumarveður“ í samtali við Vísi. 

Veður
Fréttamynd

Um­deild brottfararstöð leidd í lög

Umdeilt frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð er orðið að lögum. Í brottfararstöð munu útlendingar geta sætt frelsissviptingu vegna ákvörðunar um að þeir skuli yfirgefa landið eða meðan mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar. Fjöldi mannúðarsamtaka hefur gagnrýnt frumvarpið, sér í lagi vegna þess að það heimilar frelsissviptingu barna. Slíkri frelsissviptingu eru þó settar þröngar skorður.

Innlent
Fréttamynd

Hætta aftur rann­sókn á Múlaborgarmálum

Lögreglan hefur aftur fellt niður rannsókn á málum er tengjast meintum kynferðisbrotum gegn þremur börnum á leikskólanum Múlaborg. Ríkissaksóknari hafði gert lögreglunni að rannsaka málin betur en lögregla segir þá ákvörðun byggða á misskilningi.

Innlent
Fréttamynd

Kristers­son í kröppum dansi á kosningaári

Öll spjót standa nú á Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, vegna ætlaðra hagsmunaárekstra, frændhygli og spillingar. Málin tengjast meðal annars samtökum eiginkonu Kristersson og systur hennar.

Erlent
Fréttamynd

Telja Ríkisút­varpið bullandi hlut­drægt í ESB-málinu

Nei-sinnar eru æfir vegna Silfurs Ríkisútvarpsins en það var helgað spurningunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Heimsýn, sem berst gegn aðildarviðræðum, hefur sent bréf sem stílað er á Stefán Eiríksson útvarpsstjóra og Stefán Jón Hafstein formann stjórnar Rúv þar sem viðraðar eru þungar áhyggjur af efnistökum Rúv.

Innlent
Fréttamynd

Land­ris og kvikusöfnun heldur á­fram

Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi með stöðugum hraða að mati Veðurstofu. Hættumat helst óbreytt og gildir til 30. júní nema breytingar verði á virkninni. 

Innlent
Fréttamynd

Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum

Heilbrigðisráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Suðurlands segja það ekki rétt sem kemur fram í frétt RÚV um að loka eigi hjúkrunardeildunum Fossheimum og Ljósheimum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi og þannig 20 hjúkrunarrýmum. Þau segja fólk ekki þurfa að óttast að vera skilið frá maka eða flutt fjarri heimabyggð.

Innlent
Fréttamynd

Safnað fyrir for­eldra Bergs Ottós

Stofnað hefur verið til söfnunar fyrir fjölskyldu Bergs Ottós Thomsen Kárasonar. Bergur Ottó fæddist 17. febrúar síðastliðinn en lést sviplega á laugardagsmorgun.

Innlent
Fréttamynd

Gervi­greindin aukið hraða net­svika gríðar­lega

Hraði í netsvikum hefur aukist gríðarlega undanfarið og hlutir sem áður tóku netþrjóta marga mánuði taka nú aðeins nokkrar mínútur að sögn sérfræðings öryggis hjá Arion banka. Almenningur þurfi að sýna tortryggni því glæpamenn treysti á að fólk bregðist við í hugsunarleysi.

Innlent
Fréttamynd

Góður gangur í fundar­höldum um þing­lok

Enn er óvíst hvort takist að ljúka þingstörfum í vikunni líkt og gert er ráð fyrir í starfsáætlun Alþingis, þingflokksformaður Viðreisnar segir þó góðan gang í viðræðum þingflokksformanna, en meðal ásteytingsefna er frumvarp um innviðafélag.

Innlent
Fréttamynd

Jóna Árný endurráðin bæjar­stjóri

Jóna Árný Þórðardóttir hefur verið endurráðin bæjarstjóri Fjarðabyggðar  fyrir kjörtímabilið 2026-2030. Ráðning hennar var staðfest af öllum bæjarfulltrúum 3. júní síðastliðinn og ráðningarsamningur undirritaður í gær.

Innlent