„Mjög venjulegt sumarveður“ Úrkoman sem hefur leikið íbúa á suðvesturhorninu grátt síðustu daga er „mjög venjulegt sumarveður,“ segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Veður 9.6.2026 16:23
Umdeild brottfararstöð leidd í lög Umdeilt frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð er orðið að lögum. Í brottfararstöð munu útlendingar geta sætt frelsissviptingu vegna ákvörðunar um að þeir skuli yfirgefa landið eða meðan mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar. Fjöldi mannúðarsamtaka hefur gagnrýnt frumvarpið, sér í lagi vegna þess að það heimilar frelsissviptingu barna. Slíkri frelsissviptingu eru þó settar þröngar skorður. Innlent 9.6.2026 16:08
Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Fimm karlmenn voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi tíu daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur. Mennirnir eru grunaðir um að hafa staðið að innflutningi kókaíns og amfetamíns með Norrænu. Innlent 9.6.2026 16:05
Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Heilbrigðisráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Suðurlands segja það ekki rétt sem kemur fram í frétt RÚV um að loka eigi hjúkrunardeildunum Fossheimum og Ljósheimum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi og þannig 20 hjúkrunarrýmum. Þau segja fólk ekki þurfa að óttast að vera skilið frá maka eða flutt fjarri heimabyggð. Innlent 9.6.2026 13:52
Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Stofnað hefur verið til söfnunar fyrir fjölskyldu Bergs Ottós Thomsen Kárasonar. Bergur Ottó fæddist 17. febrúar síðastliðinn en lést sviplega á laugardagsmorgun. Innlent 9.6.2026 13:48
Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Landsréttur staðfesti í gær að Hannes Valle Þorsteinsson sæti áfram gæsluvarðhaldi vegna kynferðisbrots gegn barni á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík. Innlent 9.6.2026 13:48
Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Hraði í netsvikum hefur aukist gríðarlega undanfarið og hlutir sem áður tóku netþrjóta marga mánuði taka nú aðeins nokkrar mínútur að sögn sérfræðings öryggis hjá Arion banka. Almenningur þurfi að sýna tortryggni því glæpamenn treysti á að fólk bregðist við í hugsunarleysi. Innlent 9.6.2026 13:16
Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn er óvíst hvort takist að ljúka þingstörfum í vikunni líkt og gert er ráð fyrir í starfsáætlun Alþingis, þingflokksformaður Viðreisnar segir þó góðan gang í viðræðum þingflokksformanna, en meðal ásteytingsefna er frumvarp um innviðafélag. Innlent 9.6.2026 12:00
Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á þingstörfunum en sumarfrí þingmanna nálgast nú óðfluga þótt enn séu nokkur stór mál á dagskrá. Innlent 9.6.2026 11:34
Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri Jóna Árný Þórðardóttir hefur verið endurráðin bæjarstjóri Fjarðabyggðar fyrir kjörtímabilið 2026-2030. Ráðning hennar var staðfest af öllum bæjarfulltrúum 3. júní síðastliðinn og ráðningarsamningur undirritaður í gær. Innlent 9.6.2026 11:18
Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag „Ég held að Pútín sé umkringdur fólki með ólíkar skoðanir. Helmingur vill halda stríðinu áfram. Helmingur vill stoppa. Og ég held að þeir sem koma úr viðskiptalífinu skilji að efnahagslega er ástandið í Rússlandi hræðilegt. Það er að hruni komið.“ Erlent 9.6.2026 11:15
„Fórnarlambið látið borga brúsann“ Bjarni Þór Bjarnason sóknarprestur á Seltjarnarnesi lenti í klóm svikahrappa sem höfðu tæpa hálfa milljón króna af kreditkortinu hans. Hann segir farir sínar ekki sléttar eftir áratuga viðskipti við Íslandsbanka. Innlent 9.6.2026 11:14
Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Ísland gæti tekið þátt í nýju samevrópsku verkefni um hafrannsóknir og vöktun eftir að Bandaríkjastjórn ákvað að fjarlægja hundruð mælitækja úr hafinu. Vísindamenn hafa reitt sig á tækin til þess að fylgjast með veltihringrás Atlantshafsins sem óttast er að geti veikst eða hrunið vegna hnattrænnar hlýnunar. Innlent 9.6.2026 10:49
Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Almennur tekjuskattur nam 282 milljörðum króna og fjármagnstekjuskattur 65 milljörðum króna á síðasta ári. Samtals nam tekjuskattur til ríkissjóðs 346 milljörðum og 417 milljarðar króna runnu í útsvar til sveitarfélaga. Hlutfall tekjuskatts til ríkissjóðs var 45,4% á móti 54,6% sem rann til sveitarfélaga. Innlent 9.6.2026 10:36
Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Sitjandi ríkisstjórn Armeníu hefur unnið hreinan meirihluta á þingi. Kosningar voru haldnar þar í landi á sunnudaginn og fékk flokkur Nikols Pashinyan, forsætisráðherra, 49,8 prósent atkvæða. Dugar það til meirihluta á þingi samkvæmt kosningakerfi ríkisins. Erlent 9.6.2026 10:22
„Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Þriðja umræða fer fram á Alþingi í dag um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og meðlimur í allsherjar- og menntamálanefnd, segir brottfararstöðina eiga að tryggja mannúð í ömurlegum aðstæðum. Gert sé ráð fyrir því að fjölskyldur verði vistaðar á sérsvæði í úrræðinu en hann segist þó vona að vægari úrræði verði notuð áður. Gert sé ráð fyrir því í lögunum. Innlent 9.6.2026 08:06
Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Ísraelsher hefur hvatt íbúa Tyre í suðurhluta Líbanon til að yfirgefa borgina, aðeins degi eftir að ráðamenn í Ísrael og Íran sögðust myndu láta af árásum ef hinn aðilinn gerði slíkt hið sama. Erlent 9.6.2026 07:50
Þónokkrar lægðir stýra veðrinu næstu daga Í dag er spáð suðaustlægri eða breytileg átt, fimm til 13 metrum á sekúndu, en hægari suðvestantil. Víða rigning með köflum eða skúrir, en úrkomulítið norðaustanlands. Veður 9.6.2026 07:17
Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Stjórnvöld í Þýskalandi og Frakklandi hafa komist að þeirri niðurstöðu að fyrirtæki sem áttu að starfa saman að því að framleiða nýja orrustuþotu muni ekki ná að komast að samkomulagi um verkefnið. Erlent 9.6.2026 06:55
Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Lögregla á höfuðborgarsvæðinu greip til rafvarnarvopns í gærkvöldi eða nótt en þurfti á endanum ekki að nota það. Tilkynning barst um yfirstandandi innbrot en sá sem tilkynnti var handtekinn. Innlent 9.6.2026 06:30
Vaxtaplanið sé tímaskekkja Rithöfundasamband Íslands telur vaxtarplan ríkisstjórnarinnar vera tímaskekkju þar ofuráhersla er lögð á störf sem tæknin er komin næst því að gera óþörf. Á sama tíma sé sneitt fram hjá verðmætustu vaxtatækifærum atvinnulífs. Innlent 8.6.2026 23:35
Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Vottorð frá kírópraktor varð til þess að maður var sýknaður af ákæru um ölvunarakstur. Meiðsli eftir bílbeltið gáfu til kynna að hann hefði setið í farþegasætinu. Innlent 8.6.2026 23:15
Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Sex þingmenn hafa yfirgefið þingheim fyrstu átján mánuði kjörtímabilsins vegna hneykslismála eða til að taka við öðrum störfum. Þingmenn hafa þegið milljónir í biðlaun eftir afsagnir. Innlent 8.6.2026 22:03
„Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Óvíst er hvort það takist að ljúka þingstörfum í þessari viku líkt og gert er ráð fyrir í starfsáætlun. Ekki hefur verið samið um þinglok og segir þingflokksformaður Samfylkingarinnar að það sé möguleiki þingið teygi sig yfir í næstu viku. Eldhúsdagsumræður eru fyrirhugaðar á miðvikudag. Innlent 8.6.2026 22:00