Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Ísraelsher hefur hvatt íbúa Tyre í suðurhluta Líbanon til að yfirgefa borgina, aðeins degi eftir að ráðamenn í Ísrael og Íran sögðust myndu láta af árásum ef hinn aðilinn gerði slíkt hið sama. Erlent 9.6.2026 07:50
Þónokkrar lægðir stýra veðrinu næstu daga Í dag er spáð suðaustlægri eða breytileg átt, fimm til 13 metrum á sekúndu, en hægari suðvestantil. Víða rigning með köflum eða skúrir, en úrkomulítið norðaustanlands. Veður 9.6.2026 07:17
Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Stjórnvöld í Þýskalandi og Frakklandi hafa komist að þeirri niðurstöðu að fyrirtæki sem áttu að starfa saman að því að framleiða nýja orrustuþotu muni ekki ná að komast að samkomulagi um verkefnið. Erlent 9.6.2026 06:55
Aðalsteinn hleypur í skarðið Aðalsteinn Leifsson, fyrrverandi ríkissáttasemjari, hleypur í skarðið sem ríkissáttasemjari í nokkra daga á meðan Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari sækir norrænan samráðsfund sáttasemjara. Innlent 8.6.2026 20:52
„Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Framkvæmdastjóri Barnaheilla gagnrýnir stjórnvöld fyrir að veita heimild til að frelsissvipta börn í sérstakri brottfararstöð vegna gjörða foreldra þeirra. Þingmaður Samfylkingarinnar segir stjórnvöld reyna að gera gott úr erfiðri stöðu. Hann vonar að úrræðið verði aldrei nýtt. Innlent 8.6.2026 19:50
Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Vilhjálmur Árnason hefur gert forseta Alþingis grein fyrir afsögn sinni en hann hóf störf sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar 2. júní. Vilhjálmur hefur verið þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Suðurkjördæmi frá árinu 2013 og var varaformaður þingflokksins. Innlent 8.6.2026 17:52
Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Hópur fólks sem samanstendur af tólf félögum í Sósíalistaflokki Íslands andmælir fundarboðun og þeim ákvörðunum sem teknar voru á aðalfundi flokksins sem fór fram um helgina, 6.–7. júní, og segir hann hafa verið skipulagðan í leynd. Innlent 8.6.2026 17:48
Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Börn í brottfararstöð verða í brennidepli í kvöldfréttum Sýnar. Umræða um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð hefur ekki verið í átakafarvegi í þinginu en utan þings hafa ýmsir gagnrýnt harðlega að börn verði vistuð í stöðinni. Í kvöldfréttum mætast þau Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, og Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, sem munu eiga opið og hreinskiptið samtal um málið. Innlent 8.6.2026 17:44
Séra Guðni Már kveður Ísland Séra Guðni Már Harðarson hefur verið ráðinn sendiráðsprestur í Danmörku og prestur við íslenska söfnuðinn þar í landi. Hann hefur verið áberandi innan kirkjunnar og jarðsöng til að mynda tónlistarmanninn Björgvin Halldórsson og Bryndísi Klöru Birgisdóttur sem lést af sárum sínum eftir hnífstunguárás á Menningarnótt árið 2024. Innlent 8.6.2026 16:53
Marius látinn laus Marius Borg Høiby hefur farið fram á og fengið samþykkt af héraðsdómi Óslóarborgar að hann verði látinn laus til að vera með móður sinni, Mette-Marit krónprinsessu Noregs. Saksóknari kærði ákvörðunina svo Marius situr áfram inni um tíma. Réttarhöld yfir honum hafa staðið frá í febrúar og er hann ákærður fyrir fjölda ofbeldis- og kynferðisbrota. Erlent 8.6.2026 16:52
Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Margrét Friðriksdóttir leitar til almennings eftir styrkjum en hún hlaut að sögn þungt högg í héraðsdómi þegar hún var dæmd til að greiða sekt í ríkissjóð vegna ummæla um Barböru Björnsdóttur dómara þess efnis að hún væri lauslát mella. Innlent 8.6.2026 16:49
Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Xi Jinping, forseti Kína, sótti í morgun kollega sinn Norður-Kóreu heim. Kim Jong Un tók vel á móti Xi og saman hétu þeir því að styrkja samband ríkjanna. Dregið hefur úr áhrifum Kínverja í Norður-Kóreu, samhliða auknum áhrifum Rússa þar og auknu efnahagslegu sjálfstæði Kóreumanna. Erlent 8.6.2026 16:48
„Svaraðu spurningunni“ Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sakaði utanríkisráðherra um Evrópumet í mótsögn þegar til umræðu var þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB. Forseti Alþingis þurfti að biðja þingmenn að halda ró sinni í umræðum Innlent 8.6.2026 16:24
Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Sérsveitarmenn voru að störfum á Eskifirði í dag. Götu í bænum var lokað í dag og sáust sérsveitarmenn fara inn í hús þar. Þá var Lögreglan á Austurlandi einnig með dróna á lofti yfir bænum um tíma. Innlent 8.6.2026 15:15
Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Tjónið af völdum eldsins sem upp kom í Sorpu á Álfsnesi nemur um hundrað milljónum króna. Eldurinn kviknaði í timburhakkaravél sem skemmdist. Innlent 8.6.2026 14:55
Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Umsóknum um nám við Háskólann á Akureyri fjölgaði um 8,5% milli ára. Innlent 8.6.2026 14:49
„Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, telur fráleitt að menn setji sig upp á móti tónleikahaldi á Þingvöllum en að sama skapi er honum mjög í nöp við að fólk sé að atast í jarðneskum leifum Jónasar Hallgrímssonar. Innlent 8.6.2026 13:48
Báðir segjast hættir, í bili Útlit er fyrir að átökunum milli Ísrael og Íran, sem blossuðu upp á nýjan leik í gærkvöldi, sé lokið eða í það minnsta í bili. Ráðamenn í báðum ríkjum segjast hættir árásum en halda möguleikanum á því að hefja þær að nýju opnum. Erlent 8.6.2026 13:34
Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Ungir Evrópusinnar hlutu verðlaun ungliðahreyfingar Viðreisnar á landsþingi hennar um helgina fyrir að sporna gegn upplýsingaóreiðu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Formaður hreyfingarinnar var endurkjörinn á þinginu. Innlent 8.6.2026 13:11
Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hefur verið auglýst til umsóknar. Þekktum nöfnum hefur verið kastað fram nú þegar leit er hafin að arftaka Höllu Bergþóru Björnsdóttur. Innlent 8.6.2026 12:45
Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Eldur hefur komið upp í vinnuvél í Álfsnesi á Kjalarnesi. Reykjarmökkur sést víða að og lögregla og slökkvilið eru á vettvangi. Innlent 8.6.2026 12:45
Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Utanríkisráðherra fullyrðir að möguleg innganga Íslands í Evrópusambandið hefði engin áhrif á varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna. Ísland væri skilgreint sem hluti af heimavarnasvæði Bandaríkjanna og væri grunnurinn að varnarsamstarfi ríkjanna tveggja. Innlent 8.6.2026 12:09
Enn í lífshættulegu ástandi Karlmaðurinn sem var fluttur til Noregs með brunasár eftir lögregluaðgerð í Reykjanesbæ er enn í lífshættu og enn á gjörgæslu að sögn lögmanns mannsins. Innlent 8.6.2026 12:09
Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart Kalla þurfti til lögreglu að Konukoti í síðustu viku og stendur til að bæta lýsingu og fjölga myndavélum vegna atviks sem þar kom upp, að sögn sviðsstjóra velferðarsviðs hjá Reykjavíkurborg, sem segir lýsingar fyrirtækjaeigenda um ófremdarástand í götunni þó koma á óvart þar sem reksturinn hafi heilt yfir gengið vel að hennar mati. Innlent 8.6.2026 12:03