Skoðun


Fréttamynd

Full­trúar ESB á RÚV

Jón Bjarnason skrifar

Það var svolítið sérstakt að horfa á sendiherrann Stefán Hauk Jóhannesson í Silfrinu á RÚV í gærkvöld ræða umsókn og innlimunarferli Íslands í ESB eftir umsóknina 2009.

Skoðun
Fréttamynd

Ó­alandi og ó­ferjandi

Gunnar Salvarsson skrifar

Óalandi og óferjandi var stundum sagt á bernskudögum mínum um þá sem töldust vart húsum hæfir vegna óþekktar. Þá var óþekkt oft talin nægileg skýring á því að sum börn höfðu ekki hemil á hegðun sinni. Í dag eru hegðunarerfiðleikar barna oftar skýrðir með ýmsum greiningum, allt frá ADHD til lestrarörðugleika og annarra þroska- eða námsfrávika. Ég ætla ekki að gera lítið úr mikilvægi greininga en ef litið er yfir sviðið og spurt hvort þær hafi leyst vandann er ólíklegt að margir séu þeirri fullyrðingu sammála.

Skoðun
Fréttamynd

Brjóstsviði á sumrin – þegar meltingin fer í sumar­frí

Elísabet Reynisdóttir skrifar

Margir tengja sumarfrí við slökun og endurhleðslu. Samt finna fjölmargir fyrir auknum brjóstsviða, uppþembu, óþægindum eftir mat eða almennri vanlíðan frá meltingarfærum yfir sumarmánuðina. Það kann að hljóma þversagnakennt, en þrátt fyrir að við séum í fríi er líkaminn ekki endilega í fríham.

Skoðun
Fréttamynd

Eigin­leikar góðs leið­toga

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Leiðtogafræðin hafa þróast mikið á síðustu áratugum og fjölmargar kenningar og nálganir hafa verið settar fram til að útskýra hvað gerir einstakling að áhrifaríkum leiðtoga.

Skoðun
Fréttamynd

Hræsni siðferðisriddara

Sigurjón Þórðarson skrifar

Flestir en langt frá því allir eru einhuga um að þeim sem hefur verið synjað um dvalarleyfi á íslandi verði gert að yfirgefa landið.

Skoðun
Fréttamynd

Er drónaskapur dóna­skapur?

Björn Steinbekk skrifar

Þann 17. maí síðastliðinn ákvað Náttúruverndarstofnun Íslands að banna drónaflug á fjölmörgum stöðum á landinu nema fyrir kvikmyndaverkefni, rannsóknir, vaktanir og leyfisskylda viðburði og jú, fjölmiðla.

Skoðun
Fréttamynd

Um mögu­lega 20 km styttingu Hring­vegar á Norður­landi vestra

Jónas B. Guðmundsson skrifar

Nú styttist væntanlega mjög í að Alþingi samþykki samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030 auk frumvarps til laga um nýtt innviðafélag sem annist gerð vega og annarra samgöngumannvirkja og innheimti gjald fyrir notkun þeirra.

Skoðun
Fréttamynd

Hvernig losum við bílinn?

Elín Anna Baldursdóttir skrifar

Mikið hefur verið skrifað og rætt um menntamál á Íslandi að undanförnu. Skýrslur hafa verið rýndar, tölur greindar og bent á ýmsar ástæður þess að staðan er eins og hún er. Það er gott og gilt en þegar bíll situr fastur í snjóskafli er ekki endilega besta lausnin að þrasa um það hvernig hann festist heldur ætti fókusinn að vera á það að losa bílinn.

Skoðun
Fréttamynd

Upp­skrift að lakari sam­keppnis­hæfni fisk­eldis

Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Fiskeldi hefur á undanförnum árum þróast úr tiltölulega smárri atvinnugrein í mikilvæga stoð í íslensku atvinnulífi. Útflutningsverðmæti eldisafurða hafa farið yfir 50 milljarða króna á ári og greinin er orðin ein af stærstu útflutningsgreinum landsins.

Skoðun
Fréttamynd

Á að brenna ó­lesnar bækur?

Jón Páll Haraldsson skrifar

Ég skil ekki hvernig sumt fólk telur sig hefa rétt á að fara fram á að uppkast að samningi skuli brennast áður en hann er lesinn.

Skoðun
Fréttamynd

Bönnum Rússa en ekki Ísraela

Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar

Utanríkisráðherra og dómsmálaráðherra Íslands hafa ákveðið að vera í hópi 11 ríkja sem vilja takmarka vegabréfsáritanir til Rússa.

Skoðun
Fréttamynd

Í upp­hafi skal endinn skoða

Íris Eva Gísladóttir, Ársæll Guðmundsson, Jóhanna Stella Oddsdóttir, Simon Cramer Larsen og Helga Þórðardóttir skrifa

Mennta- og barnamálaráðuneytið tilkynnti fyrir helgi að það hafi sett af stað kannanir meðal stærðfræðikennara í grunn- og framhaldsskólum til að kanna stöðu námsgagna í greininni.

Skoðun
Fréttamynd

Skil­greiningar­vald mennskunnar

Erna Mist skrifar

Upp á síðkastið hefur „mennskan“ verið vinsælt hugtak sem fólk beitir í móðgunarskyni til að koma pólitískri óánægju sinni á framfæri.

Skoðun
Fréttamynd

Dýrasta land heims í nafni sjálf­stæðisins

Inga Valgerður Henrikssen skrifar

Það sem mér finnst hvað áhugaverðast við umræðuna um Evrópusambandið hér á Íslandi er hversu oft hún festist í fortíðinni á meðan heimurinn í kringum okkur er að breytast með hraða sem við höfum vart séð áður. Hér heima er umræðan enn gjarnan sett fram eins og þetta sé fyrst og fremst spurning um fiskveiðar, þjóðerniskennd eða ótta við að „selja landið“.

Skoðun
Fréttamynd

Hug­leiðingar um með­ferð á beiðni um DNA rann­sókn á manna­beinum í graf­reit

Lára Magnúsardóttir skrifar

Nú eru fréttir um að einstaklingar og fyrirtæki sem ætla að gera sjónvarpsþætti hafi sent þjóðgarðsverðinum á Þingvöllum „beiðni um DNA sýnatöku af beinaleifum Jónasar Hallgrímssonar í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum í tengslum við kvikmyndagerð … Í erindinu er óskað eftir því að þjóðgarðsvörður fyrir hönd Þingvallanefndar láti opna gröfina þannig að hægt sé að komast að beinunum og taka sýni.“

Skoðun
Fréttamynd

Ef þetta væri barnið þitt

Arnar Kjartansson skrifar

Um daginn sá ég ræðu sem sat í mér. Jackie Goldberg, stjórnarformaður skólaumdæmisins í Los Angeles, stóð upp á opnum fundi sumarið 2023 eftir þriggja daga mótmæli fyrir utan Saticoy grunnskólann. Tilefnið var barnabók sem nefnir í einni setningu að sumir krakkar eigi tvær mömmur eða tvo pabba.

Skoðun
Fréttamynd

Eru á­fengis­kaup verndandi þáttur?

Dagbjört Harðardóttir skrifar

Þegar sumarið gengur í garð breytast daglegar venjur margra fjölskyldna. Skólum lýkur, skipulagið verður frjálslegra og börn og ungmenni verja meiri tíma með vinum sínum og utan hefðbundins ramma skóla og tómstunda.

Skoðun