MÁNUDAGUR 20. MAÍ NÝJAST 14:07

Tap hjá Íslendingaliðinu Avaldsnes

SPORT

Rannsókn á Lindsor-málinu komin á skrið hjá sérstökum

Vísir Innlent 12. ágúst 2012 18:30
Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson voru æðstu stjórnendur Kaupþings. Hreiðar Már forstjóri og Sigurður stjórnarformaður. Myndin er tekin fyrir utan stjórnarráðshúsið aðeins nokkrum dögum fyrir fall bankanna í október 2008 og rétt áður en Kaupþing millifærði 171 milljón evra til huldufélagsins Lindsor, en félaginu var stýrt af stjórnendum Kaupþings.
Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson voru æðstu stjórnendur Kaupþings. Hreiðar Már forstjóri og Sigurður stjórnarformaður. Myndin er tekin fyrir utan stjórnarráðshúsið aðeins nokkrum dögum fyrir fall bankanna í október 2008 og rétt áður en Kaupþing millifærði 171 milljón evra til huldufélagsins Lindsor, en félaginu var stýrt af stjórnendum Kaupþings.
Kaupþing var að reyna að greiða upp eigin skuldabréf og afstýra falli bankans þegar hundrað sjötíu og ein milljón evra var millifærð til Lúxemborgar til félags sem stjórnendur bankans stýrðu í miðju hruni, sama dag og bankinn fékk stóran hluta neyðarfjár íslenska ríkisins að láni hjá Seðlabanka Íslands.

Rannsókn málsins er komin af stað hjá sérstökum saksóknara eftir eins og hálfs árs bið eftir gögnum.

Einn af umdeildustu gjörningum hrunsins var þegar Kaupþing lánaði félaginu Lindsor Holdings Corporation 171 milljón evra hinn 6. október 2008. Sama dag og neyðarlögin voru sett og sama dag og Seðlabankinn lánaði bankanum 500 milljónir evra.

Í raun var um stóran hluta neyðarfjár íslenska ríkisins að ræða. Aldrei hafa fengist skýringar opinberlega hjá stjórnendum Kaupþings á málinu, en það er til rannsóknar hér hjá sérstökum saksóknara.

Lindsor var skráð á Tortóla á Jómfrúreyjum og stýrt af stjórnendum Kaupþings banka og lánið til félagsins var notað til kaupa skuldabréf af Kaupþingi í Lúxemborg, einstökum starfsmönnum þess banka og félagi í eigu Skúla Þorvaldssonar.

Tímaröð atburða
Á hádegi 6. október fékk bankinn 500 milljónir evra hjá Seðlabanknum.

Klukkan fjögur sama dag ávarpaði Geir Haarde þjóðina og kynnti um neyðarlögin.

Geir og Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóri, tóku ákvörðun um lánveitinguna. Til er upptaka af símtali milli þeirra þar sem ákvörðun um lánið er rædd, sem efnahags- og skattanefnd hefur viljað komast yfir, en Seðlabankinn hefur neitað að afhenda afrit af símtalinu.

Þessir atburðir hafa vakið margar spurningar.

Hvers vegna féll Kaupþing 2 dögum eftir að hafa fengið næstum allan gjaldeyrisforða Íslands að láni?

Hvers vegna lánaði Seðlabankinn þessa peninga, ef Kaupþing stóð höllum fæti?

Hvers vegna lána stjórnendur Kaupþings á sama tíma hundruð milljóna evra til Lúxemborgar og þar með hluta neyðarfjár íslenska ríkisins?

Þegar stórt er spurt, er fátt um svör.

Kannski eru til einfaldar skýringar á þessu máli.

Stöð 2 hefur heimildir fyrir því að rannsóknin sé ágætlega af stað komin hjá saksóknara, en þar er á rúmlega 20 manna teymi sem einbeitir sér eingöngu að Kaupþingi, af rúmlega 100 manna starfsliði. Fyrst í vor fengust gögn frá Lúxemborg eftir tæplega eins og hálfs árs bið, en fyrrverandi eigendur Kaupþings töfðu fyrir, m.a með því að kæra afhendingu gagnanna.

Búið er að yfirheyra nær alla sem að málinu koma.

Tvö ár síðan Hreiðar sat í gæsluvarðhaldi
Nú eru rúmlega 800 dagar síðan Hreiðar Már Sigurðsson sat í gæsluvarðhaldi. Hann og aðrir stjórnendur Kaupþings hafa verið ákærðir í Al-Thani málinu, en engin ákvörðun hefur verið tekin varðandi Lindsor.

Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að stjórnendur Kaupþings hafi gefið þær skýringar að evrurnar sem komu frá Seðlabankanum hafi aldrei farið til Lúxemborgar. Ekki eitt einasta cent.

Hægt sé að rekja hverja einustu millifærslu og þessir peningar hafi farið inn á evrureikning Kaupþings hjá Deutsche Bank.

Einn fyrrverandi starfsmaður Kaupþings sem fréttastofan ræddi við sagði að ef málið væri svo einfalt, að stjórnendur Kaupþings hefðu stolið þessum peningum, af hverju væri ekki búið að ákæra þá?

Lánið til Lindsor fór í kaup á skuldabréfum
Á sex mánaða tímabili árið 2008 hafi Kaupþing í Lúxemborg keypt mikið af skuldabréfum móðurfélagsins heima á Íslandi. Lánið til Lindsor hafi farið í nákvæmlega þetta.

Þá hafa þær skýringar verið gefnar, samkvæmt heimildum, að bankinn hafi grætt mikið á að kaupa eigin skuldabréf með afslætti. Bankinn hafi ætlað að nýta sér innlán á EDGE-reikningunum til að greiða upp skuldabréf á lágu verði og forða þannig bankanum frá falli. EDGE-reikningarnir, ólíkt Icesave, voru gerðir upp að fullu í þeim tíu löndum þar sem reikningarnir voru og því aldrei mögulegur skuldabaggi á íslenska ríkinu, eins og Icesave.

Daginn eftir setningu neyðarlaganna var áhlaup á reikninga Kaupþings alls staðar í heiminum. Allir spárifjáreigendur „með vott af skynsemi í kollinum tóku peninga sína út," eins og einn heimildarmaður orðaði það í samtali við fréttastofuna. Þannig hafi neyðarlánið frá Seðlabankanum í raun brunnið inni.

Fyrrverandi stjórnendur Kaupþings hafa gefið þær skýringar opinberlega að þetta og setning neyðarlaganna daginn áður, hafi orsakað fall bankans. thorbjorn@stod2.is

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Innlent 20. maí 2013 14:04

Stjórnarmyndunarviðræður langt komnar

Miðstjórn Framsóknarflokksins og flokksráð Sjálfstæðisflokksins hafa enn ekki verið boðuð til fundar til að ræða væntanlegt ríkisstjórnarsamstarf. Stjórnarmyndunarviðræður flokkanna halda áfram í dag. Meira
Innlent 20. maí 2013 13:25

Ingólfur á tindinn í fyrramálið

Everest 2013-hópurinn er nú staddur í Suðurskarði Everestfjalls í 7.950 metra hæð. Til stendur að leggja af stað á tindinn síðdegis í dag. Meira
Innlent 20. maí 2013 12:34

Ráðist á mann með hnífi í dagsetri Hjálpræðishersins

Einn maður handtekinn á staðnum. Meira
Innlent 20. maí 2013 12:14

Skoða líkamsleifar í dag

Kennslanefnd kemur saman í dag vegna líkfundar í Kaldbaksvík á Ströndum nú um helgina. Notast verður við bein og tennur til að reyna að bera kennsl á viðkomandi. Meira
Innlent 20. maí 2013 11:41

Vill meira líf í kirkjugarðinn

Heimir Björn Janusarson, umsjónarmaður Hólavallakirkjugarðs, segir að þó nokkuð sé um að fólk láti setja duftker í garðinn mætti vera enn meira gert af því. Meira
Innlent 20. maí 2013 11:04

Stefán Karl skipti sér af einelti í Vesturbænum

Tveir ungir drengir öskruðu á annan að hann væri "fituklessa“ og "helvítis hommi“. Stefán hvetur fólk til að skipta sér af. Meira
Innlent 20. maí 2013 09:36

Fiskveiðibátur dreginn í land

Fékk rækjutroll í skrúfuna. Meira
Innlent 20. maí 2013 08:58

Hjón létust í slysi í Þjórsárdal

Tilraunir til endurlífgunar báru ekki árangur. Meira
Innlent 20. maí 2013 08:52

Jóhanna Sigurðardóttir og dómharðir Íslendingar í Simpsons

Íslandsþáttur Simpson-fjölskyldunnar var sýndur í Bandaríkjunum í gær. Verður á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld. Meira
Innlent 19. maí 2013 19:22

Umræðan um ESB tekið talsverðum breytingum

Veiking krónunnar og efnhagshrunið gerðu það að verkum að umræða um aðild Íslands að Evrópusambandinu varð jákvæðari en áður hafði verið. Meira
Innlent 19. maí 2013 17:43

Ekki búið að bera kennsl á líkið

Kennslanefnd sem hefur það hlutverk að bera kennsl á óþekkt lík eða líkamsleifar sem finnast stefnir að því að koma saman sem fyrst, jafnvel á morgun til að gera frumrannsókn á líkinu sem fannst sjóre... Meira
Innlent 19. maí 2013 17:33

Ólga í undirheimum vegna árásarinnar í Breiðholti

Mikili ólga er í undirheimum Íslands um þessar mundir, sérstaklega eftir árás sem varð í Ystaseli nú á föstudag. Meira
Innlent 19. maí 2013 16:00

Ferðamennirnir voru „slakir" á jakanum

Fjórir ferðamenn sem komust í sjálfheldu í Fjallsárlóni fyrr í dag munu hafa verið rólegir, enda voru þau með borð og stóla á ísjakanum og gerðu sér ekki grein fyrir hættunni. Meira
Innlent 19. maí 2013 14:23

Sitja fastir á ísjaka í Fjallsárlóni

Fjórir erlendir ferðamenn sitja fastir á ísjaka um 10 metra frá landi. Meira
Innlent 19. maí 2013 10:45

Kaupa hey fyrir tvær milljónir

Tún bænda í Svarfaðardal og Skíðadal eru enn hulin snjó og halda þarf öllu lambfé heim við hús. Heyforði er naumur og dæmi eru um að bændur hafi þurft að kaupa hey fyrir tvær milljónir króna það sem a... Meira
Innlent 19. maí 2013 10:39

Hús umlukið snjóskafli

Kostnaður við snjómokstur hjá Dalvíkurbyggð í vetur er þrefalt meiri en í meðalári. Gríðarlegt fannfergi hefur verið á Norðurlandi í allan vetur og eru dæmi um að hús á Dalvík séu enn á kafi í snjó. Meira
Innlent 19. maí 2013 10:14

Erilsamt hjá lögreglu í nótt

Mikið var um tilkynningar til lögreglu í nótt vegna hávaða, slagsmála og fleiri mála tengd ölvun. Meira
Innlent 19. maí 2013 09:47

Haldið sofandi í öndunarvél

Öðrum þeirra sem lentu í alvarlegu bílslysi skammt vestan Grundarfjarðar í gær er haldið sofandi í öndunarvél. Meira
Innlent 18. maí 2013 13:25

Skipting ráðuneyta farin að taka á sig mynd

Skipting ráðuneyta er farin að taka á sig mynd í stjórnarmyndunarviðræðum Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Sjálfstæðisflokkurinn fær fjármála- og efnahagsráðuneyti og atvinnuvegaráðuneyti í nýrri rík... Meira
Innlent 18. maí 2013 21:11

Íslendingar í 17. sæti

Eyþór Ingi og íslensku keppendurnir hrepptu 17. sæti í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva rétt í þessu. Meira
Innlent 18. maí 2013 21:55

Danir sigurvegarar Eurovision 2013

Emmelie de Forest með lagið "Only Teardrops" þótti best Meira
Innlent 18. maí 2013 21:40

Sigurlíkur Íslands sagðar 1 á móti 125

Framlag Danmerkur líklegast til að vinna. Meira
Innlent 18. maí 2013 21:25

María Sigrún les upp stigin frá Íslandi

Það er fréttaþulan skelegga á RÚV, María Sigrún Hilmarsdóttir, sem les upp stigin fyrir Íslands hönd þegar allir keppendurnir í Eurovision keppninni hafa lokið við að flytja framlög sín. Alls eru það ... Meira
Innlent 18. maí 2013 20:36

Eyþóri ákaft fagnað eftir flutning sinn

Eyþór Ingi Gunnlaugsson, fulltrúi Íslands, söng framlag Íslands í Eurovision, "Ég á líf“ óaðfinnanlega. Hann hlaut mikið lof og klapp í tónlistarhöllinni eftir að hann lauk flutningi sínum. Eyþó... Meira
Innlent 18. maí 2013 19:11

Ótrúlegur munnsöfnuður íslendinga á netinu

Stefnum vegna meiðyrða á netinu hefur fjölgað undanfarin ár segir Hæstaréttarlögmaður og sífellt fleiri leita réttar síns vegna meiðandi ummæla á veraldarvefnum. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Fréttir / Innlent / Rannsókn á Lindsor-málinu komin á skrið hjá sérstökum
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000