MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ NÝJAST 12:23

Meðlimur Pussy Riot í hungurverkfall

FRÉTTIR

Sænska leiðin ýtir undir mansal

Vísir Innlent 12. ágúst 2012 19:00
Sænska leiðin ýtir undir mansal
Karen Kjartansdóttir skrifar:
Sænska leiðin hefur orðið til þess að enn erfiðara er að koma fórnarlömbum mansals til bjargar og jafnvel ýtt undir það. Þetta segir Pye Jakobsson, stofnandi hagsmunasamtaka fólks í vændi í Svíþjóð. Hún segir að með því að gera kaupendur vændis að glæpamönnum sé komið í veg fyrir að hægt sé að hægt sé að tilkynna mansal. Slíkar tilkynningar komi annars aðallega frá vændiskaupendum.

Fullyrt er að vændi í Noregi sé bæði orðið skipulagðara og alvarlegra eftir að lög sem banna kaup á vændi tóku þar gildi fyrir þremur árum, en lagasetningin er oft nefnd sænska leiðin. Þetta sýnir ný rannsókn félagsmálastofna í Noregi. Sambærileg lög eru í gildi á Íslandi. Dómsmálayfirvöld í Noregi hafa boðað endurmat á löggjöfinni og telja að hún hafi beinlínis ýtt undir mansal.

Pye Jakobsson, stofnandi hagmunasamtaka fólks sem starfar við vændi í Svíþjóð og Finnlandi, sem kom hingað til lands til að taka þátt í Gleðigöngunni, varar eindregið við sænsku leiðinni.

„Leggjum siðferðið til hliðar. Það verður að tala við fólkið sem vinnur í kynlífsiðnaðinum því það hefur hugmyndir um hvað er hægt að gera. Og með því að gera viðskiptavini vændisfólks að glæpamönnum missum við helstu uppsprettu upplýsinga. Það var gerð rannsókn á ábendingalínu í Tyrklandi þar sem hægt var að tilkynna um mansal. Rannsóknin tók heilt ár. Meira en 80% þeirra sem hringdu inn voru viðskiptavinir. Því það eru þeir sem hitta þessar konur, karla og transfólk. Glæpavæðingin tekur burt tækifærið til að fá svona upplýsingar," segir Pye.

Henni þykir auk þess brýnt að vinna gegn því sem hún kallar staðalímynd um hina kúguðu vændiskonu.

„Hin staðlaða ímynd af þeim sem vinna við kynlífsþjónustu er svo sterk að þótt vændiskona segi: Ég hafði nokkra kosti og þetta er sú ákvörðun sem ég tók. Þá er sagt: Nei, það getur ekki verið satt. Hún hlýtur alltaf að vera fórnarlamb. Hún hefur verið neydd út í þetta."

„Það er mikilvægt að við gefum okkur tíma til að hlusta á sögu hvers einstaklings. Er vændi alltaf besti kosturinn, eða góður kostur? Nei, kannski ekki, en kannski er það kosturinn sem viðkomandi taldi bestan á þeim tíma."

Pye starfaði áður við vændi en vinnur nú að því að bæta réttarstöðu vændisfólks í Svíþjóð og Finnlandi auk þess sem hún er verkefnastjóri hjá HIV-samtökunum í Svíþjóð þar sem hún vinnur að forvörnum meðal fólks sem stundar vændi. Hún segir að mikilvægasta verkefni sitt sé að draga úr fordómum gegn fólki í vændi.

„Vændisfólki er mismunað, sumir missa íbúðina sína vegna vændisins, börnin eru tekin af sumum og sumum er neitað um eiturlyfjameðferð nema þeir hætti að vinna við vændi. Ég vinn líka mikið á alþjóðavettvangi. Margir vita það ekki, en samtök vændisfólks er mjög stór alþjóðleg hreyfing. Það eru samtök vændisfólks í mörgum löndum, þó ekki á Íslandi."

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Innlent 22. maí 2013 11:59

Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB mun fara fram

"En við ákvörðun tímasetningar á henni verður að meta aðstæður,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, verðandi forsætisráðherra. Meira
Innlent 22. maí 2013 11:49

Formennirnir kynna stjórnarsáttmálann

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins héldu stutt erindi fyrir fréttamenn á fundi í Héraðsskólanum á Laugarvatni áður en þei... Meira
Innlent 22. maí 2013 11:17

Krónan framtíðargjaldmiðill Íslendinga

"Krónan verður gjaldmiðill Íslendinga um fyrirsjáanlega framtíð," segir í stjórnarsáttmála Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson, formenn ... Meira
Innlent 22. maí 2013 11:15

Sauðburður stendur sem hæst

Þessa dagana stendur yfir mikill annatími hjá sauðfjárbændum um land allt. Sauðburðurinn stendur sem hæst og fólk þarf að vakta kindurnar allan sólarhringinn, því ærnar þurfa í flestum tilfellum hjálp... Meira
Innlent 22. maí 2013 10:11

Ólafur Ragnar ánægður með Sigmund Davíð

Ólafur Ragnar Grímsson er ánægður með að Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki hafi tekist að mynda ríkisstjórn á svo skömmum tíma og raun ber vitni. Meira
Innlent 22. maí 2013 10:09

Blaðamannafundurinn í beinni á Vísi

Blaðamannafundur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, og Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, í gamla Héraðskólahúsinu á Laugarvatni verður í beinni útsendi... Meira
Innlent 22. maí 2013 10:03

Hvað er svona merkilegt við gamla Héraðskólann?

"Þetta er eitt af glæsilegustu og sögulegustu húsum landsins auk þess er þetta fallegur staður," segir Halldór Páll Halldórsson, skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni. Meira
Innlent 22. maí 2013 09:49

Furðar sig á gamaldags hugmyndum ungra manna

Svandís Svavarsdóttir, fráfarandi umhverfisráðherra, segir hættu á að verndarsjónarmiðin verði undir í ríkisstjórn Bjarna og Sigmundar. Meira
Innlent 22. maí 2013 09:13

Stjórnarsáttmálinn kynntur í skóla Jónasar frá Hriflu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, er nú staddur á Bessastöðum á fundi með Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands. Meira
Innlent 22. maí 2013 09:13

Sigmundur Davíð fundaði með forsetanum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og verðandi forsætisráðherra, er mættur til fundar við Ólaf Ragnar Grímsson á Bessastöðum. Þar mun hann gera forsetanum grein fyrir niðurstöð... Meira
Innlent 22. maí 2013 07:28

Vélarbilun út af Skrúði

Lóðsbáturinn frá Reyðarfirði er nú að draga 30 tonna línubát með nokkurra manna áhöfn til hafnar, eftir að vélin bilaði í bátnum þegar hann var út af Skrúð í nótt. Meira
Innlent 22. maí 2013 07:01

Árás í Vesturbænum

Tveir aðilar brutu upp hurð á íbúð í Vesturborginni á öðrum tímanum í nótt, ruddust þar inn og réðust á húsráðanda. Meira
Innlent 22. maí 2013 06:00

Færri ráðherrar Framsóknar

Sjálfstæðisflokkurinn fær fimm ráðherra og Framsóknarflokkurinn fjóra í nýrri ríkisstjórn. Ekki verður skipaður sérstakur umhverfisráðherra. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verður forsætisráðherra og Bja... Meira
Innlent 22. maí 2013 06:00

Varúðar ekki gætt á vatnsverndarsvæðinu

Ekki var staðið rétt að uppsetningu olíugeymis við Þríhnúkagíga í Bláfjöllum, samkvæmt úttekt Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Umhverfisráðherra hefur, að beiðni OR, boðað hagsmunaðila á fund um málið, sem... Meira
Innlent 22. maí 2013 06:00

Geðsjúka fíkla vantar húsnæði utan Klepps

Sjö af tíu sjúklingum á legudeild Klepps bíða eftir framhaldsbúsetuúrræðum utan deildarinnar. Aðstæður sjúklinga á deildinni hafa lítið sem ekkert breyst síðan Fréttablaðið fjallaði um málið fyrir mei... Meira
Innlent 22. maí 2013 06:00

Lífshættulegt fyrir börn að sofa uppi í

Niðurstaða nýrrar breskrar rannsóknar leiðir í ljós að ungabörn sem sofa uppi í hjá foreldrum sínum eru fimm sinnum líklegri til að deyja vöggudauða en börn sem sofa ein í rúmi. Meira
Innlent 22. maí 2013 06:00

Lögmaður útskrifast sem leiðsögumaður

"Ég er nú ekki að skipta um starfsgrein, menn geta verið alveg rólegir,“ segir Helgi Jóhannesson, landsþekktur hæstaréttarlögmaður og nú nýútskrifaður gönguleiðsögumaður. Meira
Innlent 22. maí 2013 06:00

Vegur um Gálgahraun þrátt fyrir deilur

Ekki verður horfið frá áformum um lagningu nýs Álftanesvegar í gegnum Gálgahraun. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vegagerðarinnar sem Ögmundur Jónasson kallaði eftir í mars. Andri Snær Magnason, rith... Meira
Innlent 22. maí 2013 06:00

Staðið verði við uppbyggingu

Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir mikilvægt að standa við uppbyggingaráform um ný hjúkrunarrými við Sléttuveg í Reykjavík. Meira
Innlent 22. maí 2013 06:00

Konan kærði nauðgunina í gær

Lögreglumál Konan sem sakar þekktan glæpamann um að hafa nauðgað sér og varð kveikjan að líkamsárásinni í Ystaseli á föstudag hefur lagt fram kæru gegn manninum. Meira
Innlent 22. maí 2013 06:00

Ekkert meirihlutasamstarf án heilinda

"Það segir sig sjálft að ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki að starfa af heilindum í þessum meirihluta þá er náttúrlega enginn meirihluti,“ segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks... Meira
Innlent 22. maí 2013 06:00

Þrengt að hrefnuveiðimönnum

Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra, gaf í gær út reglugerð þess efnis að griðasvæði hvala í Faxaflóa stækkaði. Meira
Innlent 22. maí 2013 06:00

Leiðin niður er ekki síður erfið

Fjallgöngumaðurinn Ingólfur Geir Gissurarson náði þeim merka áfanga að klífa upp á topp Everest-fjallsins í gær og er lagður af stað niður fjallið aftur. Hann staldraði stutt við á toppnum. Haraldur Ö... Meira
Innlent 22. maí 2013 06:00

Verðbólgan ekki verið minni í tvö ár

Tólf mánaða verðbólga stendur í stað í 3,3 prósentum í maí samkvæmt nýjum spám greiningardeilda Arion banka og Íslandsbanka. Meira
Innlent 22. maí 2013 06:00

Svandís og Helgi kjörin

Helgi Hjörvar var í gær kjörinn nýr formaður þingflokks Samfylkingarinnar. Helgi skipaði annað sæti á lista flokksins í Reykjavík suður í síðustu kosningum. Oddný G. Harðardóttir var kjörin varaformað... Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Fréttir / Innlent / Sænska leiðin ýtir undir mansal
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000