FIMMTUDAGUR 23. MAÍ NÝJAST 11:07

Niðursveiflan á mörkuðum nær einnig til Íslands

VIÐSKIPTI

ESB þrýsti á Geir um að tryggja hagsmuni erlendra kröfuhafa

Vísir Innlent 29. apríl 2012 11:48
Geir H. Haarde var á dögunum dæmdur af Landsdómi fyrir að brjóta lög um stjórnarskránna þegar hann hélt ekki ríkisstjórnarfundir um alvarleika efnahagsástandsins í aðdraganda hrunsins.
Geir H. Haarde var á dögunum dæmdur af Landsdómi fyrir að brjóta lög um stjórnarskránna þegar hann hélt ekki ríkisstjórnarfundir um alvarleika efnahagsástandsins í aðdraganda hrunsins.
„Ég fann fyrir miklum þrýstingi á þessum tíma. Meðal annars fékk ég símtal frá José Manuel Baroso um þetta mál. Ég fann að hann var með undirbúinn texta sem hann las að hluta til upp," lýsti Geir H. Haarde í viðtali við Sigurjón M. Egilsson í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun, en þar lýsti fyrrverandi forsætisráðherrann því hvernig ESB þrýsti á Geir um að gera vel við erlenda kröfuhafa í hruninu.

Baroso var þá forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Geir segir að hann hafi augljóslega verið með undirbúinn texta sem hann las upp í símann, „og þar skildi ég vel hvað hann var að fara. Hann lagði mikla áherslu á að við færum vel með erlenda lánadrottna," sagði Geir um þrýstinginn sem hann fann fyrir í hruninu.

Tilefni ummæla Geirs var spurning Sigurjóns um það hvort íslenska leiðin svokallaða, sem var að leyfa bönkunum að falla, hefði ekki einfaldlega verið tilviljanakennd. Geir svaraði því til að það hafi hvorki verið til fjármunir né hafi verið pólitískur vilji fyrir því að tryggja bankana.

Geir segir að þessi leið hafi verið möguleg hér á landi, hún sé illmögulegri í stærri löndum, en hafi verið möguleg í Írlandi að hans mati. Þannig tryggði írska ríkisstjórnin innistæður banka þar í landi, „en Írarnir urðu fyrir miklum þrýstingi innan ESB um að tryggja hagsmuni erlendra kröfuhafa," bætti Geir við þegar hann lýsti mismunandi leiðum ríkjanna við að takast á við afleiðingar kreppunnar. Írland sé enn að bíta úr nálinni vegna ákvörðunar um að treysta bankana með ríkisábyrgð á meðan flestir séu sammála um að Ísland sé að rísa vel og hratt upp úr hruninu sé tekið mið af öðrum ríkjum í sambærilegri stöðu.

Geir sagði svo að ef Ísland hefði verið í ESB á þeim tíma sem hrunið varð hér á landi, hefði verið erfiðara að standa í hárinu á framkvæmdastjórn ESB, sem virtist gera ríka kröfu um að aðildarlönd ábyrgðust banka sína til þess að koma í veg fyrir að þeir féllu.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Innlent 23. maí 2013 11:02

Reynslulitlir ráðherrar

Ríkisstjórnin sem tekur formlega við völdum í dag er með töluvert minni þingreynslu en sú sem hefur setið síðustu fjögur ár. Ráðherrar nýju ríkisstjórnarinnar eru samanlagt með 45 ára þingreynslu sama... Meira
Innlent 23. maí 2013 11:01

Nýjar leiðir til að mæla virkni eldfjalla

Vísindamenn eru að þróa nýja tækni til þess að fylgjast með eldfjallavirkni á Íslandi. Ástæðurnar má rekja til eldgossins sem varð árið 2010 í Eyjafjallajökli. Eins og kunnugt er hamlaði eldgosið flug... Meira
Innlent 23. maí 2013 10:24

Klókir hrafnar gera sér laup á þaki álvers

Hrafnapar hefur gert sér laup á uppgöngupalli utan á kerskála Norðuráls á Grundartanga. Meira
Innlent 23. maí 2013 09:44

Brottför allra flugvéla frá Keflavíkurflugvelli tafðist um tvo tíma

Brottför allra flugvéla sem fara áttu frá Keflavíkurflugvelli tafðist um allt að tvær klukkustundir í morgun vegna bilunar sem upp kom í sjálfvirku flugupplýsingakerfi í flugstjórnarmiðstöðinni í Rey... Meira
Innlent 23. maí 2013 09:30

Allir nýliðar á ráðherrastóli

Enginn ráðherranna í ríkisstjórninni sem tekur formlega við völdum í dag hefur áður setið á ráðherrastóli. Það hefur ekki gerst síðan árið 1934. Meira
Innlent 23. maí 2013 08:28

Leifur toppar

Leifur Örn Svavarsson náði toppi Mount Everest rétt fyrir sólarupprás í dag og er fyrsti Íslendingurinn til þess að fara upp á toppinn með því að fara upp norðurhlíð Everest. Meira
Innlent 23. maí 2013 07:46

Verðandi móðir tvíbura flýr ófærðina

Vetrarfæri á Austurandi. Björgunarsveitarmenn og starfsmenn Vegagerðarinnar þurftu í gær að aðstoða marga ökumenn, sem voru að fara yfir Fjarðarheiðina til að ná ferjunni Norrænu á Seyðisfirði. Meira
Innlent 23. maí 2013 07:24

Risjótt tíð tefur veiðar

Einu af fjórum veiðisvæðum strandveiðibá, var lokað á miðnætti, þar sem maí-kvótinn var upp veiddur. Meira
Innlent 23. maí 2013 07:19

Birgitta Sif er fundin

Hin 14 ára gamla Birgitta Sif Gunnarsdóttir er fundin og komin heim til sín. Lögreglan á Suðurnesjunum leitaði hennar í nótt en þá hafði ekkert spurst til hennar síðan um hálf tíu leytið í gærkvöldi. Meira
Innlent 23. maí 2013 06:00

12.300 í atvinnuleit í apríl

Atvinnuleysi var 6,6 prósent í apríl samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar, sem segir að í mánuðinum hafi 12.300 verið án vinnu. Á sama tíma var skráð atvinnuleysi 4,9 prósent samkvæmt mælingu Vi... Meira
Innlent 23. maí 2013 06:00

Deila um Loft í 101

"Það liggur fyrir að við erum með einkaleyfi á vörumerkinu Loft og það stendur. Við erum ekki búin að ákveða hversu hart við göngum fram til að sækja rétt okkar en við viljum eðli málsins samkvæmt hal... Meira
Innlent 23. maí 2013 06:00

Brottnumda telpan sögð einstök hetja

"Þetta er algjör hetja. Það verður bara að segjast að þetta er einstök stúlka,“ segir María Júlía Rúnarsdóttir, fulltrúi réttargæslumanns stúlkunnar sem numin var á brott með valdi í Vesturbænum... Meira
Innlent 23. maí 2013 06:00

Ræktendur þurfa að passa sig á hvítum lit

Hvítum lit á feld hunda geta fylgt alvarleg vandamál. Í grein um ræktun íslenska fjárhundsins í nýjasta tölublaði Sáms, blaðs Hundaræktarfélags Íslands, er sérstaklega varað við því að hvítur litur ve... Meira
Innlent 23. maí 2013 06:00

Fengu gallaðar pípur frá Kína

Tafir urðu á endurbótum á lofthreinsibúnaði álversins í Straumsvík þar sem pípur sem álverið hafði pantað frá Kína reyndust gallaðar þegar þær komu til landsins. "Málningunni á talsverðum hluta af þei... Meira
Innlent 23. maí 2013 06:00

Plaggið verður ekki misskilið

Stefnuyfirlýsing nýrrar ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks einkennist af því að helstu áherslur beggja flokka fá að njóta sín; skuldaniðurfelling Framsóknar og skattabreytingar Sjálfs... Meira
Innlent 22. maí 2013 22:41

Gunnar Bragi utanríkisráðherra: "Alvöru hlé“ á viðræðum við ESB

Gunnar Bragi Sveinsson, nýr utanríkisráðherra í ríkisstjórn Framsóknarflokks- og Sjálfstæðisflokks, segir að gert verði "alvöru hlé“ á aðildarviðræðum við ESB í samræmi við stefnu flokkanna. Meira
Innlent 22. maí 2013 21:52

Sigmundur Davíð: "Það liggur á að klára þessi mál“

Ráðherraskipan Framsóknarflokksins var samþykkt einróma á þingflokksfundi nú í kvöld. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, verðandi forsætisráðherra, sagði eftir fundinn að það að lægi á að ráðast í leiðrétt... Meira
Innlent 22. maí 2013 14:03

Tillitssemi gagnvart kröfuhöfum banabiti ríkisstjórnar

Tillitssemi gagnvart erlendum kröfuhöfum varð fráfarandi ríkisstjórn að falli í síðustu kosningum. Þetta segir Jón Daníelsson hagfræðingur sem stýrir rannsóknarstofnun við London School of Economics. Meira
Innlent 22. maí 2013 23:13

Misjöfn viðbrögð við nýrri ríkisstjórn

Viðbrögð við nýrri ríkisstjórn Framsóknarflokksins, ráðherraskipan og stjórnarsáttmála eru blendin. Stjórnarsáttmálinn var kynntur í Héraðsskólanum að Laugarvatni og í kvöld kom í ljós hverjir verða r... Meira
Innlent 22. maí 2013 22:24

Nýir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins spenntir og þakklátir

Kristján Þór Júlíusson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og verðandi heilbrigðisráðherra sagðist stoltur af því að takast á við þetta ögrandi verkefni sem ráðuneytið er, eftir að þingflokksfundi Sjálfstæ... Meira
Innlent 22. maí 2013 22:11

Hanna Birna: Stefnan að jafna hlut kynjanna

"Ég er þakklát að mér hafi verið treyst fyrir þessu,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir eftir að þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins lauk í kvöld en hún verður nýr innanríkisráðherra þegar ríki... Meira
Innlent 22. maí 2013 22:05

„Komast færri að en vilja“

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins tilkynnti hina nýju ráðherra ríkistjórnarflokksins að loknum þingflokksfundi Sjálfstæðismanna í Valhöll í kvöld. Meira
Innlent 22. maí 2013 21:02

Búið að ákveða ráðherra í nýrri ríkisstjórn - aðeins þrjár konur í ráðherrahópnum

Þingflokkur framsóknarmanna samþykkti nú fyrir skömmu tillögu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um hverjir verða ráðherrar flokksins í ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks á þingflokksfundi... Meira
Innlent 22. maí 2013 20:46

Framsóknarmenn byrjaðir að funda

Þingflokksfundur Framsóknarflokksins er hafinn en hann er haldin á Alþingi. Meira
Innlent 22. maí 2013 20:21

Þessir verða ráðherrar fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Búið er að tilkynna þingmönnum Sjálfstæðisflokksins hvernig ráðherraskipan verður. Þannig verður Hanna Birna Kristjánsdóttir, varaformaður flokksins, innanríkisráðherra. Illugi Gunnarsson verður mennt... Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Fréttir / Innlent / ESB þrýsti á Geir um að tryggja hagsmuni erlendra kröfuhafa
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000