Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Samfylkingin nýtur mesta fylgis flokka á Alþingi og er marktækur munur á fylgi hennar og Sjálfstæðisflokksins fjórtánda mánuðinn í röð, samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna. Miðflokkurinn er að festa sig í sessi sem þriðji stærsti flokkurinn. Innlent 23.4.2024 19:51
Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Breiðhyltingur segir farir sínar ekki sléttar af framkvæmdum við Breiðholtsbraut. Síðustu mánuði hefur gönguleið hennar í vinnuna smám saman þrefaldast vegna framkvæmdanna. Hún segir málið hreinlega eins og í bíómynd. Innlent 23.4.2024 19:30
Ákærð fyrir að hafa orðið syni sínum að bana Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur móður sem grunuð er um að hafa orðið syni sínum að bana í Kópavogi. Hún hefur setið í gæsluvarðhaldið vegna málsins síðan í lok janúar. Innlent 23.4.2024 18:27
Húsfélagið má ekki klippa á tengil rafvirkjameistara Húsfélag fjölbýlishúss nokkurs hefur verið gert afturreka með kröfu sína um að einum íbúa hússins, sem er rafvirkjameistari, yrði bannað að nota einkatengil til hleðslu á bifreið hans í bílakjallara hússins. Húsfélagið krafðist þess einnig að því yrði eftir atvikum heimilt að klippa á tengilinn héldi eigandinn notkun hans áfram. Innlent 23.4.2024 15:56
Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Einar Þorsteinsson borgarstjóri gefur ekki mikið fyrir mótmæli borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins í ráðhúsinu í dag. Þar lögðu borgarfulltrúar flokksins 1.600 vettlinga sem þau sögðu svipað marga og þau börn sem bíði eftir leikskólaplássi í borginni. Innlent 23.4.2024 15:55
Enn kröftugt gos úr einum gíg Enn gýs úr einum gíg skammt austan við Sundhnúk. Frá 5. apríl hefur aðeins gosið úr einum gíg í eldgosinu sem hófst þann 16. mars síðastliðinn. Myndatökumaðurinn Björn Steinbekk var á vettvangi í vikunni og myndaði gosið. Innlent 23.4.2024 15:46
Börn sofi ekki úti í gosmóðunni suðvestanlands Sýnileg gosmóða frá eldgosinu á Reykjanesi liggur yfir Suðvesturlandi. Mælt er gegn því að börn sofi úti og að viðkvæmir reynir á sig utandyra þegar móðan er sýnileg jafnvel þó að mengun mælist ekki yfir mörkum á loftgæðamælum. Innlent 23.4.2024 15:24
Velkomin í Verbúðina II Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir nýr matvælaráðherra mælti fyrir frumvarpi sínu um lagareldi nú rétt í þessu. Það nær til sjókvíaeldis, landeldis, hafeldis og þörungaræktar. Fyrir liggur að málið er gríðarlega eldfimt. Innlent 23.4.2024 15:11
Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Halla Hrund Logadóttir mælist með sextán prósent fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Í fyrri Þjóðarpúlsi mældist hún aðeins með fjögur prósent fylgi. Katrín Jakobsdóttir mælist með mest fylgi og bætir lítillega við sig, fer úr 30 í 31 prósent. Innlent 23.4.2024 14:07
Ákærðir fyrir þaulskipulagða skotárás gegn feðginum á aðfangadag Þrír karlmenn hafa verið ákærðir vegna skotárásar sem átti sér stað á aðfangadag, 24 desember, í fyrra. Einn þeirra er grunaður um að hafa framið sjálfa árásina og er ákærður fyrir tilraun til manndráps, húsbrot, hættubrot og vopnalagabrot. Hinir tveir eru ákærðir fyrir hlutdeild í brotunum. Innlent 23.4.2024 13:45
Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins kom í dag 1.600 barnavettlingum fyrir í Tjarnasal ráðhússins. Svipaður fjölda barna bíði nú eftir leikskólaplássi. Oddviti flokksins, Hildur Björnsdóttir, segir uppátækið ekki síst til þess að minna borgarstjóra á leikskólavandann. Innlent 23.4.2024 13:20
Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Fyrirætlanir Heidelberg sem tengjast stórfelldum efnisflutningum til Þýskalands í gegnum Þorlákshöfn er enn komið á dagskrá. Og ekki seinna vænna enda verður íbúakosning um málið samhliða forsetakosningum. Innlent 23.4.2024 13:00
Aðstoðarrektor í Bandaríkjunum verður rektor Háskólans á Akureyri Háskólaráðherra hefur skipað Áslaugu Ásgeirsdóttur rektor Háskólans á Akureyri. Áslaug, sem var ein fimm umsækjenda um stöðuna, hefur verið aðstoðarrektor háskóla í Maine í Bandaríkjunum undanfarin fimm ár. Innlent 23.4.2024 12:51
Bjarni vill taka daginn snemma Ákveðið hefur verið að reglulegir þriðjudagsfundir ríkisstjórnar skulu hefjast fyrr um morguninn en verið hefur síðustu ár. Fundirnir hefjast nú 8:15, en í forsætisráðherratíð Katrínar Jakobsdóttur var þumalputtareglan sú að þriðjudagsfundirnir hæfust klukkan 9:30. Innlent 23.4.2024 12:41
Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, Halla Tómasdóttir athafnakona og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona verða gestir Pallborðsins í dag, sem hefst klukkan 15. Innlent 23.4.2024 12:34
Freista þess að halda veitingamanninum bak við lás og slá Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að fara fram á það í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag að Davíð Viðarsson, áður Quang Le, sæti áfram gæsluvarðhaldi. Hann hefur verið í varðhaldi í sjö vikur ásamt barnsmóður sinni og bróður. Innlent 23.4.2024 12:24
Furðar sig á ávirðingum vegna kaupa á vínarbrauði Fyrrverandi formaður og framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands fer hörðum orðum um úttekt endurskoðunarfyrirtækis á reikningum félagsins í stjórnartíð hans. Hann furðar sig meðal annars á ávirðingum fyrir að hafa ekki fengið leyfi fyrir vínarbrauðskaupum fyrir eldri félagsmenn. Innlent 23.4.2024 12:04
Tvö manndráp á skömmum tíma Í hádegisfréttum fjöllum við um rannsókn lögreglu á meintu manndrápi í fjölbýlishúsi á Akureyri í gær. Lögregla hefur að mestu lokið vettnvangsrannsókn. Innlent 23.4.2024 11:35
„Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Tæknideild lögreglu hefur að mestu lokið vettvangsrannsókn vegna manndráps í fjölbýlishúsi á Akureyri í gær. Karlmaður var síðdegis úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um að hafa banað konu. Tæknideild er enn að störfum vegna manndráps í Kiðjabergi um helgina. Innlent 23.4.2024 11:30
Vill geta vísað flóttafólki úr landi innan tveggja sólarhringa Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingar, segir enga óeiningu í Samfylkingunni. Það sé eðlilegt að það séu skoðanaskipti í stórum flokki. Hann segir Samfylkinguna tilbúna í ríkisstjórnarsamstarf og Sjálfstæðisflokkinn þurfa hvíld. Það yrði þeirra alsíðasti kostur í samstarf. Innlent 23.4.2024 10:40
Réðst á barn sem gerði dyraat Karlmaður hefur hlotið þrjátíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að ráðast að ungum dreng. Innlent 23.4.2024 10:30
Grunaður um að hafa ráðið konu sinni bana Karlmaður sem grunaður er um að hafa banað konu sinni í leiguíbúð þeirra í fjölbýlishúsi við Kjarnagötu í Naustahverfinu á Akureyri er á sjötugsaldri. Hann var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna í Héraðsdómi Norðurlands eystra í miðbæ Akureyrar seinni partinn í gær. Innlent 23.4.2024 10:20
Myndaði annan mann í sturtuklefanum Karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að taka ljósmyndir af öðrum manni í sturtuklefa. Innlent 23.4.2024 09:30
Tíðni manndrápa í takt við fjölgun mannfjölda Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur við Háskóla Íslands, segir það eðlilegt að manndrápsmálum fjölgi samhliða fjölgun mannfjöldans á Íslandi. Karlmenn séu stór hluti þeirra sem hafa flutt til landsins, ungir karlmenn, og tölfræðilega sé það líklegra að manndráp og önnur afbrot eigi sér stað meðal þeirra. Innlent 23.4.2024 08:53