Viðskipti erlent

Apple þróar rafbíl

Síðustu vikur hefur þrálátur orðrómur verið á kreiki um að Apple einblíni á nýjan markað, samgöngur.
Síðustu vikur hefur þrálátur orðrómur verið á kreiki um að Apple einblíni á nýjan markað, samgöngur.
Tæknirisinn Apple er að þróa rafbíl en um þúsund manna teymi, skipað verkfræðingum og vísindamönnum, vinnur að þróun bílsins. Það er Wall Street Journal sem greinir frá þessu í dag.

Síðustu vikur hefur þrálátur orðrómur verið á kreiki um að Apple einblíni á nýjan markað, samgöngur.

Verkefnið er kallað Títan og miðað við fréttaflutning Wall Street Journal líkist fyrsta frumgerð faratækisins smárútu.Þrátt fyrir þessa rannsóknarvinnu er með öllu óvíst að bíll frá Apple muni einhvern tíma renna um göturnar.

Sem stendur er talið að Apple vinni að þróun tæknibúnaðar fyrir rafbíla.Verkefnið á sér nokkuð langað aðdraganda en Tim Cook, framkvæmdastjóri Apple, setti saman teymið á síðasta ári.

Stjórnandi verkefnisins er Steve Zadesky, háttsettur stjórnandi hjá Apple og fyrrverandi yfirverkfræðingur hjá bílaframleiðandanum Ford.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×