Viðskipti erlent

Apple sló öll fyrri sölumet með iPhone 5 í Kína

Apple sló öll fyrri sölumet sín í Kína um helgina þegar fyrirtækið seldi þar tvær milljónir iPhone 5 síma frá föstudegi og fram á sunnudagssíðdegi.

Aldrei áður í sögunni hefur Apple selt jafnmarga iPhone síma á jafnskömmum tíma í Kína. Sala á þessum símum hófst í Bandaríkjunum og fleiri löndum í september s.l. og þá seldust um fimm milljónir þeirra á fyrstu þremur dögunum.

Þessi nýjasta útgáfa af iPhone er m.a. með stærri skermi en fyrirrennarar sínir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×