Viðskipti erlent

Apple og Facebook greiða fyrir frystingu eggja starfsmanna

Atli Ísleifsson skrifar
Facebook hóf nýlega að greiða reikninginn fyrir slíka þjónustu og mun Apple gera slíkt hið sama í ársbyrjun 2015.
Facebook hóf nýlega að greiða reikninginn fyrir slíka þjónustu og mun Apple gera slíkt hið sama í ársbyrjun 2015. Vísir/AFP
Bandarísku stórfyrirtækin Apple og Facebook greiða nú fyrir þá þjónustu, ákveði kvenkyns starfsmenn fyrirtækjanna að frysta egg sín. Er þetta gert til að bjóða þeim þann möguleika að verja frjósömustu árum lífs síns á vinnumarkaði og fresta barneignum þar til síðar.

Í frétt NBC segir að fyrirtækin virðist vera fyrstu stórfyrirtækin sem bjóði starfsmönnum sínum að greiða fyrir slíkt án þess að sérstakar læknisfræðilegar ástæður liggja að baki.

Facebook hóf nýlega að greiða reikninginn fyrir slíka þjónustu og mun Apple gera slíkt hið sama í ársbyrjun 2015. Fyrirtækin bjóða nú einnig upp á stuðning við staðgöngumæðrun og ættleiðingar.

Tölvu- og netheimurinn í Bandaríkjunum er að stórum hluta mikið karlaveldi og því berjast fyrirtæki um að ná til sín hæfileikaríkum konum.

„Það reynist enn mjög erfitt að vera með kraftmikinn frama og ala börn á sama tíma,“ segir Brigitte Adams, upphafsmaður spjallsvæðisins eggsurgance.com í samtali við NBC. Adams segir að með því að bjóða upp á slíka tryggingu séu fyrirtækin að styrkja konur á vinnumarkaði og aðstoða þær við að móta það líf sem þær sjálfar vilja.

Aðgerðir sem þessar eru mjög kostnaðarsamar og segir að sérhver aðgerð kosti um 1,2 milljónir króna í Bandaríkjunum, auk um 60 þúsund króna árlega fyrir geymslu ófrjóvgaðra eggja. Líkur á þungun eru mestar þegar konur eru á þrítugsaldri en svo fer smám saman að draga úr framleiðslu eggjanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×