Viðskipti erlent

Apple í samkeppni við Netflix

Sæunn Gísladóttir skrifar
Apple kynnti tónlistarveitu sína Apple Music fyrr á þessu ári.
Apple kynnti tónlistarveitu sína Apple Music fyrr á þessu ári. Vísir/Getty
Apple gæti verið að þróa sína eigin útgáfu af Netflix, streymiþjónustu með sérframleiddu efni. Þessu greinir CNN Money frá.

Forstöðumenn hjá Apple hafa samkvæmt heimildamanni verið í samræðum við fólk í skemmtaiðnaðinum um þetta. Þá er Apple að skoða það að framleiða sína eigin sjónvarpsþætti og kvikmyndir. Með þessari nýju þjónustu gæti Apple keppt við streymiþjónustur eins og Netflix og vinsælar sjónvarpsstöðvar eins og ABC. Auk sérframleiðslu gæti Apple fengið einkarétt á sýningu efnis frá Hollywood stúdíóum. Í dag geta Apple notendur keypt sjónvarpsþætti og kvikmyndir í iTunes en forsvarsmenn Apple gætu með þessu móti boðið efni í einkaeigu. Heimildamenn herma þó að samningaviðræður séu stutt komnar.

Það eru einnig getgátur um að Apple sé einungis að tala við framleiðendur um gerð heimildarmynda um tónlist eða upptökur á tónleikum fyrir Apple Music tónlistarveituna. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×