Viðskipti erlent

Apple hefur sölu á iPad mini

BÞH skrifar
Nýr iPad Minni útgáfan er 5 fersentímetrum minni en iPad af venjulegri stærð.nordicphotos/afp
Nýr iPad Minni útgáfan er 5 fersentímetrum minni en iPad af venjulegri stærð.nordicphotos/afp
Bandaríski tölvurisinn Apple hefur sölu á nýjum útgáfum af iPad-spjaldtölvunum um heim allan í dag. Íslenskar verslanir hefja einnig sölu á tölvunum í dag.

Tim Cook, forstjóri Apple, kynnti nýju spjaldtölvurnar á þriðjudag í síðustu viku. Bæði er um uppfærslu á þriðju kynslóð af iPad að ræða og minni útgáfu af tölvunni.

Áhrifa Steve Jobs á vörur fyrirtækisins gætir í æ minni mæli. Ný framleiðslutæki eru notuð í vörur Apple og breytingar á yfirstjórn hönnunardeilda á miðvikudag gætu haft mikil áhrif á notendaviðmót Apple-tækja framtíðarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×