Viðskipti erlent

Apple gengur til liðs við samtök sem eiga að tryggja að gervigreind snúist ekki gegn mannkyninu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ekkert Skynet, semsagt.
Ekkert Skynet, semsagt. Vísir/Sammi
Bandaríski tæknirisinn Apple hefur gengið til liðs við samtökin „Partnership on AI“ sem hafa það að markmiði að ganga úr skugga um að tæki sem styðjast við gervigreind snúist ekki gegn mannkyninu. AFP greinir frá.

Samtökin voru stofnuð á síðasta ári af Microsoft, Google, Facebook og IBM. Stofnfundur samtakanna mun fara fram 3. febrúar. Apple hefur tekið þátt í starfi samtakanna án þess þó að hafa gengið formlega til liðs við þau, fyrr en nú.

Stofnmeðlimir hafa áhyggjur af því að þróun gervigreindar geti orðið til þess að hún muni verða samfélaginu til ills, frekar en til góðs. Er því markmið samtakanna að ýta undir rannsóknir sem miða að því að tryggja að gervigreind verði mannkyni til framdráttar.

Tæknifyrirtæki hafa á undanförnum árum eytt gríðarlegum fjárhæðum í að þróa gervigreind og tæki sem styðjast við hana og er talið að slík tæki verði komin inn á hvert heimili innan skamms.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×